Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 164 k fol.

Sögubók ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-4v)
Brandkrossa þáttur
Titill í handriti

Þáttur af Brandkrossa og um uppruna Droplaugarsona.

Upphaf

Þar hefjum vér upp Helganna sögu er Ketill þrymur er það vér vitum hann kynsælastan verið hafa …

Niðurlag

… móðir þeirra Gríms og Helga Droplaugarsona.

2 (4v-21r)
Droplaugarsona saga
Titill í handriti

Sagan af Helga og Grími Droplaugarsonum.

Upphaf

Ketill hét maður er kallaður var þrymur …

Niðurlag

… Vetri síðar en Þangbrandur prestur kom til Íslands féll Helgi Droplaugarson.

Athugasemd

Í lok næstsíðustu setningar sögunnar eru sex punktar, hugsanlega til marks um orð sem vantar í textann.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
21 blað (316 mm x 203 mm). Blað 21r er autt að mestu, blað 21v er autt.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 1-41.
  • Blaðmerkt síðar með rauðum lit 1-21, á miðri efri spássíu.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-21, 2 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 255 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er ca 29.
  • Innri og ytri spássíur hafa hugsanlega verið afmarkaðar með þurroddi eða uppbroti blaða (sjá t.d blað 15).
  • Griporð eru á kveraskilum (sjá blöð 8v og 16v).
  • Vísuorð eru sér um línu, sbr. blöð 18r-18v.
  • Síðari sagan er kaflaskipt: 15 kaflar.

Ástand

  • Strikað hefur verið undir fyrirsögn á blaði 4v með blýanti.
  • Sums staðar hefur verið strikað undir setningar eða setningahluta með dumbrauðum lit, sbr. t.d. á blöðum 5r, 8r, 9r og víðar.

Skrifarar og skrift

Band

Pappaband frá 1772-1780 (318 mm x 208 mm x 6 mm).

Safnmark og sögutitlar á fremra spjaldblaði.

Leifar af bláum safnmarksmiða á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 135, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b 4to, bl. 6v-7r, og seðil í t.d. AM 149 fol.).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 31. október 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 9. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010, DKÞ grunnskráði 1. nóvember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1885 í Katalog I; bls. 135 (nr. 233).

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Austfirðinga sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jakobsen, Jakob
Umfang: 29
Titill: , Austfirðinga sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Jóhannesson
Umfang: 9
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Lýsigögn
×

Lýsigögn