„Þáttur Orms Stórólfssonar“
„Ketill hængur hét maður sonur Þorkels Naumdæla …“
„… og þótti æ hinn mesti maður og varð ellidauður og hélt vel trú sína.“
Og lýkur þar söguþætti þessum frá Ormi Stórólfssyni.
Handritið í heild hefur verið borið saman við handritið AM 160 fol. sem skrifað er af Jóni Erlendssyni (sbr. athugasemd Árna Magnússonar á blaði 1r og seðil). Hér eru titill þáttar, upphaf og baktitill þáttarins út frá lesbrigðum úr samanburðarhandriti:
4 kver:
Pappaband (320 mm x 207 mm x 4 mm) frá 1772-1780.
Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 134. Það var áður hluti af stærri bók (í grænu bandi, sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 15 fol., AM 144 fol. og AM 188 fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Jóni Torfasyni á Breiðabólsstað (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. október 1974.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.