Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 159 fol.

Finnboga saga ramma ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-34v)
Finnboga saga ramma
Titill í handriti

Hér byrjast sagan af Finnboga hinum ramma

Upphaf

Ásbjörn hét maður og var kallaður dettiás …

Niðurlag

… bræður hans aðrir voru mjög í förum þar til að þeir staðfestu ráð sitt og þóttu allir mikilsháttar menn.

Baktitill

Endir Finnboga sögu.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam // Ekkert mótmerki ( 3-4 , 7-8 , 11-13 , 17-19 , 21 , 23 , 27 , 30-32 , 34 ).

Blaðfjöldi
i + 34 + i blöð (288 mm x 187 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking með svörtu bleki á fimmta hverju blaði.

Blaðmerking með rauðu bleki 1-34.

Kveraskipan

3 kver.

  • Kver I: blað 1r-12v, 6 tvinn.
  • Kver II: blað 13r-20v, 4 tvinn.
  • Kver III: blað 21r-34v, 7 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur ca 240 mm x 145 mm.
  • Línufjöldi ca 28.
  • Í flestum tilfellum er markað fyrir innri og ytri spássíum; í sumum tilfellum hugsanlega með því að brotið er upp á blöð (sbr. blöð 7-8 til dæmis).
  • Síðutitlar.
  • Kaflaskipting: Kapituli 1-43.

Skrifarar og skrift

Skrifað af Þórði Þórðarsyni; ung hönd (sbr. seðill), fljótaskrift.

Band

Pappaband frá 1772-1780.

Fylgigögn

Seðill (164 mm x 106 mm) innan á fremra spjaldi með hendi skrifara Árna Magnússonar: Úr bók er ég fékk af séra Guðmundi á Helgafelli, er með hendi Þórðar Þórðarsonar þá hann var ungur. [Nokkru neðar á seðlinum ritar Árni heiti sögunnar sem handritið geymir] Finnboga ramma saga.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 112.

Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 163 f fol., AM 163 g fol., AM 163 s fol. og líklega AM 164 e fol.

Ferill

Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Guðmundi á Helgafelli (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar  í desember 1885, Katalog I; bls. 112 (nr. 195), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum, 5. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði 22. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Slay, Desmond
Titill: The manuscripts of Hrólfs saga kraka,
Umfang: XXIV
Titill: , Hálfs saga ok Hálfsrekka
Ritstjóri / Útgefandi: Seelow, Hubert
Umfang: 20
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn