„Saga af Gísla Súrssyni.“
„[Þ]að er upphaf á sögu þessari að Hákon konungur Aðalsteinsfóstri réð fyrir Noregi …“
„… Víða hefir hann búið á Mýrum og eru menn komnir frá honum. “
„Þessi saga er skrifuð eftir sögubók Þorleifs Magnússonar á Hlíðarenda, anno 17. mars 1651 í Villingaholti .“
Lúku vér hér Gísla sögu Súrssonar. Guð gefi alla góða daga utan enda. Amen.
Pappír.
Aðalmerki 1: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum (IS5000-02-0148_19v, sjá líka IS5000-02-0148_21r og IS5000-02-0148_27v), bl. 4, 8, 10-11, 14, 16, 19, 21, 27, 29, 31-32, 34-35. Stærð: 57-58 x 46-48 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 57-58 mm.
Aðalmerki 1 (par): (IS5000-02-0148_33r), bl. 6, 9, 18, 23, 26, 33. Stærð: 59 x 48 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 59 mm.
Notað í 1651.6 kver:
Band (292 null x 190 null x 13 null): Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli (bókfellsband). Blár safnmarksmiði á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi nánar tiltekið í Villingaholti árið 1651 (sbr. blað 40r).
Þetta er uppskrift eftir skinnbókinni AM 556 a 4to (sbr. saurblað 2v).
AM 148 fol. var upprunalega hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 13 fol., AM 34 II fol., AM 49 fol. og AM 113 b fol. (113 c var sett í stað b þegar það var skorið úr bókinni) og AM 185 fol. (sbr. Agnete Loth og Jón Helgason ).
Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Þorbjargar Vigfúsdóttur en Árni Magnússon fékk hana frá Þórði Jónssyni (sbr. Agnete Loth og Jón Helgason ).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 27. nóvember 1885 Katalog I; bls. 103-104 (nr. 177), VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 24. nóvember 2008, yfirfór í september 2009; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði 19. júní 2020. BS lagfærði blaðatalið 12. september 2022. EM uppfærði vatnsmerkin og skráði kveraskipan 29. maí 2023.