„Saga þessi kallast Laxdæla af gömlum Íslendingum.“
Sami texti og í AM 125 fol.
„Ketill flatnefur hét maður, sonur Bjarnar bunu …“
„… Bolli fékk Sigríði gjaforð göfugt og lauk vel við hana og höfum vér eigi heyrt þessa sögu lengri.“
„Vísa um Kjartan Ólafsson er orti þórður Magnússon.“
„Kært var kóngi björtum / Kjartans til í hjarta …“
„… stórt hann afl ei skorti.“
„Önnur um Bolla“
„Bolli snilldar snilli / snjallur á bar hjalli …“
„… allmörg frænda falli.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Sennilega dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga ( 1 , 3 , 5 , 7? , 13-15 , 17? , 20? , dárahöfuðin eru mjög ógreinileg í handriti) // Mótmerki: Stakir bókstafir, virðast vera ML ( 2? , 8? , 16? , bókstafirnir eru mjög ógreinilegir í handriti).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam? // Ekkert mótmerki ( 10? , 22? , 25-26? , skjaldarmerkin eru mjög óskýr í handriti).
Ein hönd, þétt skrift, mikið um styttingar og bönd. Sama skrift og í AM 126 fol.
Band (320 null x 220 null x 15 null) frá 1974. Pappaspjöld eru klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum.
Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Eldra band frá 1880-1920 (320 null x 203 null x 7 null).
Spjöld eru klædd pappír og strigi er á kili og hornum.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 91.
Árni Magnússon segir handritið hafa verið í láni hjá Jóni Arnórssyni í Ljárskógum (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. september 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í maí 1974.
Bundið af Otto Ehlert 1880-1920. Það band fylgir í öskju.