Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 116 fol.

Sturlunga saga ; Ísland, 1600-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-244v (bls. 1-487))
Sturlunga saga
Titill í handriti

Íslendinga saga hin mikla, kennd við Sturlunga og sundurdeild í nokkra bæklinga eður þætti.

1.1 (1r-14r (bls. 1-27))
Geirmundar þáttur heljarskinns
Titill í handriti

Fyrsti þáttur. Um Hafliða Másson og Þorgils Oddason, þeirra ætt og uppruna, deilur og sættir.

Upphaf

Geirmundur heljarskinn var son Hjörs kóngs Hálfssonar …

Niðurlag

… eða hittust þá stóðu þeir jafnan að málum hvor með öðrum svo lengi sem þeir lifðu.

1.2 (14r-31v (bls. 27-61))
Ættartölur
Titill í handriti

Nokkrar ættartölur Íslendinga sem fram koma í þessari sögu og byrjast hér annar þáttur af Einari Þorgilssyni.

Upphaf

Sæmundur hinn fróði átti Guðrúnu dóttur Kolbeins …

Niðurlag

… orti Þorvaldur kvæði um bróður sinn, þóttist svo hyggja best af harmi eftir hann.

1.3 (31v-58v (bls. 61-115))
Prestssaga Guðmundar Arasonar
Titill í handriti

Þriðji þáttur. Fyrst um fæðing Guðmundar Arasonar er síðar varð biskup, hans uppfóstur og lærdóm. Hér er og getið Þorláks biskups er áður hefur kallaður verið hinn helgi. Sagan af Guðmundi dýra og hans gjörningum, hans mótstöðumannadeilur, manndráp, brenna og fleira sem um þann tíma hefur við borið.

Upphaf

Nú tek ég þar til frásagnar er Guðmundur son Ara var fæddur …

Niðurlag

… Kolbeini Tumasyni líkuðu illa þær málalyktir en Sighvati verr.

1.3.1 (58v-66r (bls. 115-130))
Haukdæla þáttur
Titill í handriti

Nokkrar ættartölur frá norskum og til Gissurar hvíta, frá honum höfðu fyrstu Skálholtsbiskupar sinn uppruna, svo og Þorvaldur Gissurarson og hans synir: Gissur son hans sem síðar varð jarl, átti hann við seinni konu, Þóru dóttur Guðmundar gríss og Sólveigar dóttur Jóns Loftssonar. 1. kapituli.

Upphaf

Ketilbjörn Ketilsson, maður norrænn, mjög frægur …

Niðurlag

… Sigurður gaf þau Tuma Sighvatssyni og komst Sighvatur svo að þeim.

1.4 (66r-96r (bls. 130-190))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Fjórði þáttur. Af Íslendingum og er fyrst af Guðmundi biskupi, Kolbeini Tumasyni og þeirra viðskiptum. Jafnframt þessu er sagan af Þorvaldi Vatnsfirðingi og Hrafni Sveinbjarnarsyni og þeirra deilum, item hvernig þeir helstu höfðingjar settu sig mót biskupi eftir fall Kolbeins.

Upphaf

Þá er Guðmundur biskup kom út …

Niðurlag

… og skildu við svo búið og endir hér þenna þátt.

1.5 (96v-122v (bls. 191-242))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Fimmti þáttur. Hvernig Þorvaldssynir veittu heimsókn og rændu á Sauðafelli, drápu og særðu þar marga menn og um sátt þeirra við Sturlu; af Guðmundi biskupi, hans mótgangi og ofsóknum: Sturla lætur drepa Vatnsfirðinga; hans sigling, Rómarganga og afturkoma; þræta Sighvats og Kolbeins og sætt, sigling og afturkoma; af yfirgangi Órækju og afdrifum samt öðru, þrætum og manndrápum er á þeim árum hafa til fallið.

Upphaf

Hér byrja ég sögu af sonum Þorvalds í Vatnsfirði …

Niðurlag

… Á því sama ári er Þorvaldur andaðist, andaðist og Sigurður Ormsson, Flosi munkur Bjarnason og digur Helgi.

1.6 (122v-145r (bls. 242-288))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Sjötti þáttur. Af Sighvati á Grund og Sturlu syni hans og þeirra yfirgangi; af bardögum Sturlu og aðtektum, item hvernig Kolbeinn ungi, Gissur Þorvaldsson og fleiri aðrir safna liði: þeir feðgar í annan stað með því fleira sem fyrr og síðan gerðist; um fall þeirra feðga og annarra á Örlygsstöðum: Kolbeinn gerðist yfirvald, herra fyrir norðan; sigling Snorra og útkoma, hans afturkoma; af Órækju, drápi Klængs og fleirum tilburðum hans á landi um þann tíma.

Upphaf

Gissur Þorvaldsson bjó að Reykjum …

Niðurlag

… að draga saman vináttu þeirra frænda, var það og auðvelt.

1.7 (145r-183r (bls. 288-364))
Þórðar saga kakala
Titill í handriti

Sjöundi þáttur. Sturlunga saga

Upphaf

Einum vetri eftir andlát Snorra Sturlusonar hófust þeir atburðir er mörg tíðindi gerðust af síðan …

Niðurlag

… Hallur var þar nær viku og reið síðan heim norður á Flugumýri.

1.8 (183r-200v (bls. 364-399))
Þorgils saga skarða
Titill í handriti

Áttundi þáttur Sturlunga sögu. 1. kapituli. Uppvöxtur Þorgils skarða.

Upphaf

Böðvar son Þórðar Sturlusonar bjó á Stað …

Niðurlag

… Hrafn var boðsmaður Gissurar. Endir þessa þáttar.

1.9 (200v-236r (bls. 299-470))
Íslendinga saga
Titill í handriti

IX. þáttur Sturlunga sögu er Íslendinga saga. 1. kapituli. Þuríður Sturludóttir manar mann sinn Eyjólf, til föðurhefnda.

Upphaf

Um sumarið áður en brullaupið var á Flugumýri um haustið …

Niðurlag

… stóð þetta mál þá kyrrt, dróst fundur undan og varð engi á því sumri.

1.10 (236v-244v (bls. 471-487))
Íslendinga saga
Titill í handriti

X. þáttur af Íslendingum sérdeilis Gissuri jarli. 1. kapituli. Útkoma Gissurar jarls.

Upphaf

Nú byrja ég þar frásögu er Gissur Þorvaldsson kemur út frá Noregi með jarlsnafni …

Niðurlag

… og jörðuðu það í kirkju Péturs postula, er hann hafði nær mesta elsku á haft af öllum helgum mönnum.

2 (245r-306v (bls. 488-611))
Árna saga biskups
Titill í handriti

Sagan af Árna biskupi í Skálholti og hvernig bændur urðu þrengdir frá sínum óðulum með bannfæringum og ýmislegum tilfellum, hvar um þann tíma hefur tilborið hér á Íslandi einnig í Noregi.

Upphaf

Herra Árni biskup er þessi frásögn er af skrifuð var son Þorláks Guðmundssonar …

Niðurlag

… þá datum 1309. Sigldi hann árið síðar eftir við til kirkjunnar og kom út á árinu næstu eftir með viðinn og margar gersemar aðrar. Hann dó anno Christi 1320.

Notaskrá

Þorleifur Hauksson 1972, Árna saga biskupsRit 2.

Athugasemd

Vísur sr. Jóns Arasonar vantar aftan við og hafa þær hugsanlega týnst úr handritinu áður en það barst til Kaupmannahafnar. Þær er að finna í Huseby nr. 35 sem runnið er frá þessu handriti.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með ljóni, sem heldur á örvum, í tvöföldum ramma ásamt kórónu efst ( 262-264 , 268 , 272 , 274 , 279 , 281 , 286 , 288 , 290 , 295 , 297-299 , 302 , 304-305 ) // Mótmerki: Stakir bókstafir 1 ( 1 , 261 , 265-267 , 271 , 273 , 280 , 282-284 , 287 , 289 , 291-294 , 296 , 300 , 303 , 306 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki // Ekkert mótmerki ( 2 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 1, kúla og bókstafur H fyrir neðan // Ekkert mótmerki ( 4 ).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 2 // Ekkert mótmerki ( 5 , 7 , 9-10 ( // Mótmerki: Stakir bókstafir 2 ( 6 , 8 , 11-12 ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir á staf ( 13 , 15 , 21-22 , 25-27 , 29 , 31 , 33 , 39-42 , 47-52 , 53-54 , 57 , 59-62 , 68 , 71-72 , 74 , 76 , 79-80 , 82 , 86 , 88-90 , 94 , 98 , 101 , 102 , 105 , 107 , 109 , 111 , 113 , 119-123 , 125-126 , 129 , 132-133 , 135 , 138 , 140-141 , 143 , 146-147 , 149 , 151 , 153 , 155-157 , 159 , 165 , 167 , 169-171 , 173 , 175 , 177 , 181 , 183 , 185-186 , 191-194 , 197 , 202 , 208 , 210 , 216 , 218 , 224 , 226-227 , 232 , 237 , 244 , 247 , 252-253 , 258 , Dárahöfuð, einkum á bls. 48, 54, 57, 59, 68, 76, 101, 147 og 157, eru nokkuð óskýr í handritinu) // Mótmerki: Stakir bókstafir 3 ( 14 , 16-17 , 19 , 23-24 , 28 , 30 , 32 , 34-38 , 43-46 , 52 , 55-56 , 58 , 63-67 , 69-70 , 73 , 75 , 77-78 , 81 , 83-85 , 87 , 91-93 , 95 , 104 , 112 , 114-115 , 117 , 128 , 131 , 136 , 139 , 144 , 152 , 154 , 160 , 162-163 , 176 , 178-179 , 184 , 187 , 189 , 195 , 203 , 205 , 211 , 213 , 221 , 229 , 234-235 , 242 , 245 , 250 , 255 , 260 ).

Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Skjaldarmerki með ljóni, örvum og bókstafnum V // Ekkert mótmerki ( 18 ).

Vatnsmerki 7. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 3 // Ekkert mótmerki ( 106 ).

Vatnsmerki 8. Aðalmerki: Dárahöfuð með litlum bjöllum á kraga, enginn stafur // Ekkert mótmerki ( 199 , 201 , 206 , 209 , 215 , 218 , 222 , 225 , 228 , 230 , 240-241 , 243 , 249 , 251 , 256 , 259 ).

Vatnsmerki 9. Aðalmerki: Pro Patria ( 269 , 275 ) // Mótmerki: Stakir bókstafir 4 ( 270 , 276 ).

Blaðfjöldi
i + 306 + i blöð (309 mm x 196 mm).
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 1-611.

Síðari tíma blaðmerking er á rektósíðum 1-306.

Kveraskipan

41 kver:

  • I: spjaldblað - viðbót 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • II: bl. 1-7 (eitt blað + 2 tvinn + eitt tvinn: 1, 2+5, 3+4, 6+7)
  • III: bl. 8-14 (3 tvinn + eitt blað: 8+13, 9+12, 10+11, 14)
  • IV: bl. 15-20 (3 tvinn: 15+20, 16+19, 17+18)
  • V: bl. 21-26 (3 tvinn: 21+26, 22+25, 23+24)
  • VI: bl. 27-34 (4 tvinn: 27+34, 28+33, 29+32, 30+31)
  • VII: bl. 35-42 (4 tvinn: 35+42, 36+41, 37+40, 38+39)
  • VIII: bl. 43-50 (4 tvinn: 43+50, 44+49, 45+48, 46+47)
  • IX: bl. 51-58 (4 tvinn: 51+58, 52+57, 53+56, 54+55)
  • X: bl. 59-66 (4 tvinn: 59+66, 60+65, 61+64, 62+63)
  • XI: bl. 67-74 (4 tvinn: 67+74, 68+73, 69+72, 70+71)
  • XII: bl. 75-82 (4 tvinn: 75+82, 76+81, 77+80, 78+79)
  • XIII: bl. 83-90 (4 tvinn: 83+90, 84+89, 85+88, 86+87)
  • XIV: bl. 91-98 (4 tvinn: 91+98, 92+97, 93+96, 94+95)
  • XV: bl. 99-106 (4 tvinn: 99+106, 100+105, 101+104, 102+103)
  • XVI: bl. 107-114 (4 tvinn: 107+114, 108+113, 109+112, 110+111)
  • XVII: bl. 115-122 (4 tvinn: 115+122, 116+121, 117+120, 118+119)
  • XVIII: bl. 123-130 (4 tvinn: 123+130, 124+129, 125+128, 126+127)
  • XIX: bl. 131-138 (4 tvinn: 131+138, 132+137, 133+136, 134+135)
  • XX: bl. 139-146 (4 tvinn: 139+146, 140+145, 141+144, 142+143)
  • XXI: bl. 147-154 (4 tvinn: 147+154, 148+153, 149+152, 150+151)
  • XXII: bl. 155-162 (4 tvinn: 155+162, 156+161, 157+160, 158+159)
  • XXIII: bl. 163-170 (4 tvinn: 163+170, 164+169, 165+168, 166+167)
  • XXIV: bl. 171-178 (4 tvinn: 171+178, 172+177, 173+176, 174+175)
  • XXV: bl. 179-186 (4 tvinn: 179+186, 180+185, 181+184, 182+183)
  • XXVI: bl. 187-194 (4 tvinn: 187+194, 188+193, 189+192, 190+191)
  • XXVII: bl. 195-202 (4 tvinn: 195+202, 196+201, 197+200, 198+199)
  • XXVIII: bl. 203-210 (4 tvinn: 203+210, 204+209, 205+208, 206+207)
  • XXIX: bl. 211-218 (4 tvinn: 211+218, 212+217, 213+216, 214+215)
  • XXX: bl. 219-226 (4 tvinn: 219+226, 220+225, 221+224, 222+223)
  • XXXI: bl. 227-234 (4 tvinn: 227+234, 228+233, 229+232, 220+221)
  • XXXII: bl. 235-244 (5 tvinn: 235+244, 236+243, 237+242, 238+241, 239+240)
  • XXXIII: bl. 245-252 (4 tvinn: 245+252, 246+251, 247+250, 248+249)
  • XXXIV: bl. 253-260 (4 tvinn: 253+260, 254+259, 255+258, 256+257)
  • XXXV: bl. 261-268 (4 tvinn: 261+268, 262+267, 263+266, 264+265)
  • XXXVI: bl. 269-276 (4 tvinn: 269+266, 270+275, 271+274, 272+273)
  • XXXVII: bl. 277-284 (4 tvinn: 277+284, 278+283, 279+282, 280+281)
  • XXXVIII: bl. 285-292 (4 tvinn: 285+292, 286+291, 287+290, 288+289)
  • XXXIX: bl. 293-298 (3 tvinn: 293+298, 294+297, 295+296)
  • XL: bl. 299-306 (4 tvinn: 299+306, 230+235, 231+234, 232+233)
  • XLI: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 215 mm x 128 mm.
  • Línufjöldi er ca 30-36.
  • Griporð eru víða.
  • Leturflötur er afmarkaður með línum dregnum með beini.

Ástand

  • Það vantar aftan af handritinu.
  • Handritið hefur verið lagfært og blöð og blaðjaðrar styrktir (sjá t.d. blöð 19r-31v).
  • Með handritinu fylgja blaðbútar sem skornir hafa verið frá við viðgerð bandsins; þeir eru blaðmerktir. Þar um ræðir til dæmis blöð 258r og 259r.

Skrifarar og skrift

Tvær aðalhendur.

  • Bl. 2r-260v eru að miklu leyti skrifuð af tveimur óþekktum skrifurum, kansellískrift.
  • Bl. 261r-306v með óþekktum höndum, kansellískrift.

Skreytingar

  • Skreytt fyrirsögn (bl. 1r).

Fallega skreyttir upphafsstafir í fyrirsögn og upphafi texta á blaði 1r.

  • Rauðritaðar kaflafyrirsagnir á blöðum 67r-260v.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Blað 1 er innskotsblað með hendi sr. Jóns Ólafssonar á Lambavatni og bætt við um 1700 fyrir Árna Magnússon, sem hefur farið yfir og leiðrétt textann eftir forriti.
  • Blað 18 er innskotsblað með óþekktri hendi.
  • Blöð 261r-306v eru innskotsblöð með hendi Jóns Sigurðssonar eldra, bætt við um 1700 fyrir Árna Magnússon, sem hefur farið yfir og leiðrétt textann.
  • Handritið er merkt B efst á blaði 1r með hendi frá 18. öld.
  • Árni Magnússon hefur skrifað fáein ártöl í lok handritsins.
  • Spássíugreinar eru ekki algengar en á stöku stað má sjá einstaka orð og viðbætur við texta, sbr. á blöðum 147v, 153v, 156v og víðar.

Band

Band frá 1980 (317 mm x 225 mm x 70 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur er á kili og hornum. Saumað á móttök.

Eldra band frá 1700-1730.

Fylgigögn

  • Seðill (155 mm x 113 mm) með hendi Árna Magnússonar: Sturlunga Saga. Kom fra Monsr. Orme Dadasyne 1724.
  • Tveir lausir miðar með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 80. Það er skrifað eftir AM 438 4to.

Ferill

Handritið hefur verið í eigu Guðrúnar Eggertsdóttur í Bæ á Rauðasandi. Árni Magnússon fékk það með milligöngu Orms Daðasonar árið 1724 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. apríl 1981.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885 Katalog I , bls. 80 (144), DKÞ færði inn grunnupplýsingar 5. mars 2001. VH endurskráði handritið14.-17. nóvember 2008; lagfærði í nóvember 2010. ÞS lagfærði 14. desember 2009. ÞÓS skráði 11. júní 2020. EM uppfærði kveraskipan 7. júní 2023.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið á verkstæði Birgitte Dall í september 1980.

Gömul viðgerð á blöðum fremst og aftast í handritinu, pappírsstrimlar límdir á kanta. Jón Sigurðsson hefur víða skrifað á strimlana þann texta sem undir þeim lenti. Strimlarnir hafa nú verið fjarlægðir og fylgja með í möppu.

Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730. Það band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Antiquités Russes
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: Heimkynni uppskrifta Sturlunga sögu, Skjöldur
Umfang: 11
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: , Árna saga biskups
Ritstjóri / Útgefandi: Þorleifur Hauksson
Umfang: II
Titill: Sturlunga saga Including the Islendinga Saga of Lawman Sturla Thordsson and other Works
Ritstjóri / Útgefandi: Guðbrandur Vígfússon
Umfang: I
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Lýsigögn
×

Lýsigögn