„Schedæ Ara prests fróða“
„Incipit libellus Islandorum.“
„[Í]sland byggðist fyrst úr Norvegi á dögum Haralds hins hárfagra Halfdanarsonar …“
„… Hér lýkst sjá bók.“
„Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala … “
„Ketilbjörn landnámsmaður …“
„… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.“
„Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga“
„Ingvi Tyrkjakonungur …“
„… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.“
3 kver:
Ein hönd, skrifari er óþekktur; kansellískrift. Griporð skrifuð með fljótaskrift.
Griporð eru flúruð, stundum með tveimur einföldum línum, stundum með stafaflúri sem nær neðst á síðu. Sama stafaflúr má einnig sjá í AM 108 fol.
Þó nokkuð um spássíugreinar, mest með hendi Árna Magnússonar.
Band (306 mm x 231 mm x 9 mm) er frá 1971.
Pappaspjöld eru klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur er á kili og hornum; saumað á móttök.
Eldra pappaband (295 mm x 208 mm x 2 mm) frá 1772-1780.
Titill og safnmark er skrifað á fremra spjald.
Handritið er í öskju með AM 113 b-k fol.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 76. Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 108 fol., AM 218 fol. og AM 341 fol. Jakob Benediktsson (1958, xviii-xix) hélt því fram að AM 108 fol. hafi verið í sömu bók og AM 129 fol., AM 163 k fol. og AM 164 c fol. en Beeke Stegmann telur líklegara að þau hafi verið í öðru handriti sem Árni Magnússon fékk frá Jónasi Daðasyni Gam (sbr. líka seðil (r)).
Árni Magnússon fékk bókina sem handritið tilheyrði frá Jóni Daðasyni (sbr. seðil). Árni bar eintakið saman við AM 113 i fol. og taldi það afrit þess. Bæði handritin áleit hann vera af A-gerð.
Í 1730 var handritið hluti af No. 113 in fol. (sbr. AM 456 fol., 3v og AM 477 fol., 5v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 30. október 1885 í Katalog I , bls. 76 (nr. 135), DKÞ grunnskráði 20. nóvember 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 4. febrúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 8. júní 2020. EM uppfærði kveraskipan 20. júní 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 6. febrúar 2024.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1971.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780. Það band fylgir.