Rímur af Sigurði turnara, ortar af Magnúsi Magnússyni á Magnússkógum. Rímur af Tútu og Gvilhelmínu, kveðnar af Hallgrími Jónssyni . Skrifaðar af Pétri Friðfinnsyni 1872. Rímur af Brávallabardaga, kveðnar af Árna Böðvarssyni 1760. Skrifaðar í Barði 1873 af Pétri Friðfinnsyni.
„Fyrsta ríma“
„Kjalars rauðan kera straum …“
„… málgist slagur kvæða.“
Sex rímur; ortar 1811 fyrir Þorlák Einarsson (sjá nánar Rímnatal 1966: 427). Blað 1v er autt.
„Fyrsta ríma“
„Eitt sinn þá eg ungur lék …“
„… gleði, frið og sóma.“
„Skrifaðar í flýtir af Pétri Friðfinnssyni, 1872.“
(Skrifaraklausan er á blaði 75v). Átta rímur (sjá nánar Rímnatal 1966: 479). Blað 35v er autt.
„Fyrsta ríma“
„Tvíblinds hallar turna frí …“
„… unni runnar bála. “
„Skrifaðar 1873 af Pétri Friðfinnssyni.“
(Skrifaraklausan er á blaði 75v). Tíu rímur; ortar 1760 fyrir Jón Árnason á Ingjaldshóli (sjá nánar Rímnatal 1966: 91).
„Stutt útlegging yfir þær vönduðustu kenningar er fyrir koma í rímum þessum. Í fyrstu rímu“
„Tveir æðstu innri partar …“
„… en Hjálmur heitir og Þokki.“
„Þessi bók var byrjuð á jölaföstu en enduð á miðvikudaginn fyrstan á Þorra af Pétri Friðfinnssyni á Barði.“
(Skrifaraklausan er á blaði 118v).
Upprunalegt blaðsíðutal: 1-183 (vantar 184 inn í blaðsíðutal) + 185-224 + 125-136 (í stað 225-236).
Blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-118.
Blöð 1v, 35v og 76v eru auð.
Fimmtán kver.
Með hendi Péturs Friðfinnssonar á Barði; snarhönd.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra og settara letri en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 6v og 103v-104r).
Á titilsíðum eru fyrirsagnir með fylltum stöfum og litað er kringum stafi með fjólubláum lit.
Skrautbekkir umlykja titilsíður (sjá blöð 1r, 35r, 76r).
Band (167 mm x 105 mm x 20 mm): Pappaspjöld eru klædd grænum og svörtum marmarapappír; dökkbrúnt skinn er á spjaldhornum og kili. Á kili er gylling: Rímnabók. (sjá nánar: Ástand).
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 108, 109, 110, 111 og 112.
Handritið var skrifað á Íslandi á jólaföstu 1872 og uppskriftin enduð í Þorra 1873 (sbr. blað 118v).
VH skráði í september 2010.