„Hér skrifast rímur af Stellu gjörðar af Sigurði Péturssyni sýslumanni í Kjósarsýslu og héraðsdómara í Gullbringusýslu“
„Í fyrsta sinn eg set á haf …“
„… ljómaði fjórða og fimmta sól, fríhöndlunarinnar.“
Átta rímur (sjá nánar Rímnatal 1966: 449). Um Stellurímur fjallar Guðrún Ingólfsdóttir (1998): „Brjálaður er hann annaðhvert, / eður hann gjörir bögu“; Um kveðskap Sigurðar Péturssonar sýslumanns í Vefni [rafrænt efni] : tímarit Félags um 18. aldar fræði.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Fyrirsagnir og fyrsta lína í rímu eru með stærra og settara letri en annars er á textunum (sjá t.d. blöð 18r og 55v).
Band frá síðari hluta tuttugustu aldar (141 mm x 82 mm x 15 mm). Tréspjöld eru klædd vönduðu rauðu skinni á kili og hornum, slönguskinnslíki er á spjöldum; spjaldblöð eru úr brúnum og örlítið yrjóttum pappír, sami pappír er í fremra saurblaði að framan og aftan; hin saurblöðin eru úr hvítum stýfum pappír; saurblöð tilheyra bandi.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 86, 87, 88, 89 og 90.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á 19. öld.
VH skráði í ágúst 2010.