Skráningarfærsla handrits

SÁM 30b

Gátur, þulur, vísur og sagnir

Athugasemd
Þjóðfræðisafn II. hluti; ýmsir sagnamenn.
Tungumál textans
íslenska (aðal); íslenska

Innihald

1 (1r-6r )
Sagnir
Athugasemd

Sagnir og endurminningar Guðnýjar Jónsdóttur í Múla. Frásagnirnar eru allt frá árinu 1889 til ársins 1964.

Handskrifað er á sex línustrikuð blöð (A5); tvo tvíblöðunga og tvö laus blöð og eru blöðin fest saman með klemmu.

Blað 6v er autt.

2 (7r-16r )
Sagnir
Athugasemd

Sagnir Guðnýjar Jónsdóttur í Geithellum skráðar um 1965 (sbr. blað 16v). Hún fæddist 1885 í Álftafirði (sbr. viðbót með annarri hendi á blaði 7r).

Fyrstu ca sextán línurnar eru skrifaðar með blýanti en síðan er skrifað með penna.

Um er að ræða tvær dulrænar frásagnir og eina þulu: Stúlkurnar ganga sunnan með sjá …

Uppskriftin er tíu línustrikuð blöð (A5), yfirleitt eru verso-hliðar blaða auðar. Blöðin eru fest saman með klemmu.

3 (17r-32r )
Kveðskapur eftir ýmsa höfunda
Athugasemd

Sextán blöð (A4), fest saman með klemmu. Fjórtán eru vélrituð, tvö eru ljósrit.

3.1 (17r-20r )
Tígull fyrstum frá mig lystir greina …
Höfundur

Jónas Jónasson í Hofdölum

Titill í handriti

Hvað spilin þýða

Upphaf

Tígull fyrstum frá mig lystir greina …

Niðurlag

… hörð veikindi reynir þú.

Athugasemd

Vísurnar eru skráðar eftir handriti Sigurðar Helgasonar, Ránarstíg 2, Sauðárkróki, í desember 1969.

Vísurnar eru í fjórum flokkum: Tígullinn, hjartað, laufið og spaðinn. Átta vísur eru í hverjum flokki.

3.2 (21r-24r )
Tígull fyrstum frá mig lystir greina …
Athugasemd

Spilavísurnar í lið 3.1.

3.3 (25r-27r )
Óðar blands …
Höfundur

Sigurður Stefánsson, bóndi í Garðshorni í Hofshreppi

Upphaf

Óðar blands …

Niðurlag

… hörð veikindi reynir þú

Athugasemd

Vísurnar eru skráðar eftir handriti Sigurðar Helgasonar, Ránarstíg 2, Sauðárkróki, en það handrit mun hafa verið ritað 1968 eða 1969.

Alls eru vísurnar tuttugu.

3.4 (27r-28r )
Blossa ála bríkin mær …
Titill í handriti

Lausavísur eftir handriti Sigurðar

Upphaf

Blossa ála bríkin mær …

Niðurlag

… mun í hjarta leyni.

Athugasemd

Vísur þessar virðast vera stakar vísur úr lengra kvæði um einhverja unnustu, en höfundur ókunnur (H.E.).

Vísurnar eru hér fjórar.

Efnisorð
3.5 (28r-30r)
Hestinn Garp að heiti skarpan átti …
Titill í handriti

Garpserfi

Upphaf

Hestinn Garp að heiti skarpan átti …

Niðurlag

… illa sómir verkið mér.

Athugasemd

Þá koma hestavísur með hendi Sigurðar. Þar stendur Sigurður Helgason, Geirmundarhóli.

Sautján erindi.

3.6 (30r)
Ellin gerir ýmsum bágt …
Höfundur

Björn Friðriksson Schram, bóndi í Húnaþingi.

Titill í handriti

Tækifærisvísur …

Upphaf

Ellin gerir ýmsum bágt …

Niðurlag

… hærra en fjöllin taka.

Athugasemd

Þrjú erindi. Vísurnar eru vélritaðar eftir uppskrift Sigurðar Helgasonar.

3.7 (31r-32r)
Hestinn Garp að heiti skarpan átti …
Athugasemd

Ljósrit úr handriti Sigurðar Helgasonar af uppskrift hans af kvæðinu Garpserfi í lið 3.5.

4 (33r-41r)
Draumur Elísabetar Þorleifsdóttur
Athugasemd

Níu ljósrituð blöð (A4) klemmd saman. Þessi draumur Elísabetar Þorleifsdóttur frá 1891 er skrifaður upp af Ágústi Gíslasyni (frá Hvammi í Dýrafirði), 3. maí 1957, samkvæmt blaði 33r. Neðst á titilsíðu er ritað með annarri hendi með penna: Olga Sigurðardóttir húsfreyja, Hjarðarhaga 3, afhenti mér þetta 9. maí 1972. Þar má líka lesa: Guðsafneitunin. Undanfari nýguðfræðinnar um aldamótin.

Efnisorð
4.1 (34r-41r)
Draumur Elísabetar Þorleifsdóttur
Höfundur

Elísabet Þorleifsdóttir

Titill í handriti

Draumur Elísabetar Þorleifsdóttur, ár 1891

Upphaf

Nóttina milli 26. - 27. febrúar 1891 dreymdi mig …

Niðurlag

… sama ár að öllu leyti eins og hann birtist hér.

Efnisorð
5 (42r-43r)
Sjóferðavísur, lausavísur, vísur úr rímum
Athugasemd

Blað 42r (A5) er handskrifað leiðréttingarblað við blað 43r (A4) sem er vélritað en það er upprunalega merkt blað 2 í e-u samhengi sem nú er rofnið. Á því blaði er tilvísun í upphaf kvæðis á blaði 1, þ.e. Nú skal vinda voð að hún … (handskrifað er þess getið að það sé á blaði 1) sem Þorgils nokkur á að hafa ort 1916 eftir norðanveður, sem voru þá undir jöklinum, í gaddfrosti og mjöll. Við fórum inn á Grundarfjörð eftir að veðrið lægði. Leiðréttingar á vélritinu eru skrifaðar með sömu hendi og blað 42r.

Skrifarinn setur upphafsstafi sína Þ.Þ. við leiðréttingarnar.

Efnisorð
5.1 (42r-43r)
Eykst nú leiði um álajörð
Titill í handriti

Sjóferðarvísur, lausavísur

Upphaf

Eykst nú leiði um álajörð …

Niðurlag

… svo áfram striki gnoðin.

Efnisorð
5.2 (42r-43r)
Ofan lúðir fjallið fóru …
Titill í handriti

Vísa úr Úlfarsrímum

Upphaf

Ofan lúðir fjallið fóru …

Niðurlag

… úti stóð þar fjöldi manns.

Efnisorð
5.3 (43r)
Númi hvítum hesti reið …
Titill í handriti

Úr Númarímum

Upphaf

Númi hvítum hesti reið …

Niðurlag

… Númi undan víkur sér.

Efnisorð
6 (44r-44v)
Sendibréf, kvæði og vísur
Athugasemd

Handskrifað bréf (l blað) frá Guðbjörgu Jónasdóttur til H.A.E. um öfugmæli og langloku ásamt meðfylgjandi textum.

7 (45r-53r)
Sendibréf með vísum Þorgils Þorgilssonar
Athugasemd

Handskrifað bréf (níu blöð) frá Þorgilsi Þorgilssyni, til H.A.E. með árstíðavísum eftir föður hans Þorgils Þorgilsson.

7.1 (45r-53r)
Árstíðavísur
Höfundur

Þorgils Þorgilsson

8 (54r-57r)
Sagnir
Athugasemd

Uppruna er ekki getið. Fjögur vélrituð hálfblöð með sögnum (vélritað er á baksíður prófarka af Færeyinga sögu). Sagnirnar eru: Maðurinn sem sá miðbauginn, Of djúp hola og Óskirnar þrjár.

Á blaði 54r er handskrifuð athugasemd Ó.H. við söguna, Maðurinn sem sá miðbauginn: Mig minnir ég heyrði þessa sögu fyrst hjá Aðalsteini Sigurðssyni fiskifræðingi.

Efnisorð
9 (58r-60r)
Sagnir, m.a. um Valda sóma og Jakob Guðmundsson
Athugasemd

Þorsteinn Þorsteinsson frá Húsafelli skráði 1980 (sbr. blað 60v). Þrjár vélritaðar sagnir 1) um Valdimar Þorvaldsson sem kallaður var Valdi sómi … fæddur 1881 (sbr. blað 58r); 2) um Jakob Guðmundsson (sbr. blað 59r); 3) um brandara og brandarakarla (blað 60r) og 4) handskrifuð frásögn á blaði 59v

10 (61r)
Sendibréf
Athugasemd

Eitt vélritað blað, sendibréf til H.A.E. frá Theodóri frá Bjarmalandi 21. apríl 1980 (sbr. blað 61r).

11 (62r-73r)
Þulur, kvæði, gátur og danslagatextar
Athugasemd

Tólf handskrifuð blöð (A4), samanklemmd og rituð sömu hendi. Uppruna er ekki getið.

11.1 (62r-62r)
Jólaþulur
Titill í handriti

Jólaþulur

Athugasemd

Í uppskriftinni eru þulurnar: Jólasveinar einn og átta …, Jólasveinar ganga um gólf…

11.2 (62r-62r)
Kvæði
Athugasemd

Svona er að fara seint að hátta …, Bíum, bíum, bamba … (samsteypa úr þremur vísum), Bí bí og blaka …Kúrir í klettaskoru krummi …, Í Skriðu var mér skammtað á disk … (sálmalag), Aldrei skal ég ega (!) flösku … (lag: Ó þá náð að eiga Jesúm), Grýla á sér lítinn bát …, Grýla stendur í horni …, Hárgreiðslustaði hér má kalla … (sálmalag).

11.3 (66r-69r)
Gátur
Titill í handriti

Gátur

Athugasemd

Tuttugu og fjórar gátur

Efnisorð
11.4 (70r-71r)
Danslagatextar
Titill í handriti

Gamlir danslagatextar

Athugasemd

Æ komdu litli ljúfi vin í litlan dans við mig …, Lonietturtnar lét á nefið …, Jón trúður hann átti eina einustu kú …, Magáll hvarf úr eldhúsi …, Tólf synir tímans …

11.5 (72r)
Hluti af gamalli þulu
Titill í handriti

Hluti af gamalli þulu

Upphaf

… Selur mér skæði …

Niðurlag

… og bíður mín þar.

Skrifaraklausa

Það fylgir örugglega þessari þulu einhver saga.

Athugasemd

(Skrifaraklausan er á blaði 72r)

Efnisorð
11.6 (72r)
Kerling heitir Grýla …
Upphaf

Kerling heitir Grýla …

11.7 (73r)
Gamlar vísur
Titill í handriti

Gamlar vísur

Athugasemd

Sjúkdómslýsing einföld er …, Hlustarverkur, hjartveiki …, Herðarígur, hálsbólga …, Hárið rauða hræðir mig …, Augun gráu erta mig …

12 (74r-84r)
Enginn titill
Athugasemd

Ellefu handskrifuð blöð (A4), samanheft og rituð sömu hendi og þeirri sömu og er á blöðum sem skráð eru í lið 11. Uppruna er ekki getið.

12.1 (74r)
Grýluþulur
Titill í handriti

Grýluþulur

Athugasemd

Grýla reið fyrir ofan garð …, Grýla kallar á börnin sín þegar hún fer að sjóða…

Efnisorð
12.2 (74r-75r)
Dúðadurtskvæði
Upphaf

Hér er kominn Dúðadurtur, digur bæði og hár …

Niðurlag

… því þú ert svo illgjarn að þú ert fæstum jafn.

12.3 (76r)
Krummavísur
Athugasemd

Krummi krunkar úti …, Krummi sat á kvíjavegg …, Krumminn á skjánum …

12.4 (77r)
Gilsbakkaþula
Titill í handriti

Gilsbakkaþula

Upphaf

Kátt er um jólin koma þau senn …

Niðurlag

… því allt situr fólkið við tedrykkjuborð.

12.5 (78r-79r)
Þulur
Athugasemd

Heyrði ég í hamrinum …, Þeyjuðu (!) sonur minn sæli …, Stúlkurnar ganga suður með sjó …,

Efnisorð
12.6 (79r)
Krummavísur
Athugasemd

Krumminn á skjá, skjá …, Krummi er út á hellu, krummi er út á hellu …, Krummi sat á kirkjubust …,

12.7 (80r-81r)
Hermann kemur ríðandi …
12.8 (81r)
Þulur
Athugasemd

Bokki sat í brunni …, Karl og kerling riðu á alþing ….

Efnisorð
12.9 (81r)
Dýraþulur
Titill í handriti

Dýraþulur

Athugasemd

Selur sefur á steini …, 1 og 2 inn komu þeir …, Tátta, Táta teldu dætur þínar …, Við skulum ríða sandana mjúka …, Ríðum, ríðum, langt er í skóginn …, Gekk ég upp á hólinn, horfði ofan í dalinn …, Fagur er fiskurinn, flýgur hann í sjónum….

Efnisorð
12.10 (84r)
Barnagælur
Athugasemd

Stígur hann við stokkinn …, Stígur, stígur lalli …, Stígur, stígur stúlkan ung með snilli …, Stígur, stígur stúlkan ung …, Vega salt, vega salt ….

Efnisorð
13 (85r-89r)
Ýmsar vísur og kvæði
Athugasemd

Fimm vélrituð blöð (A4) með nokkrum handrskrifuðum leiðréttingum. Uppruna er ekki getið en vélritið hefst á vísu úr Númarímum eftir Sigurð Breiðfjörð. Blað 43r hér fyrir framan (liður 5) endar á tveimur vísum úr Númarímum. Uppsetning og blaðgerð eru með sama móti og á fyrrnefndu blaði auk þess sem sama hönd ritar athugasemdir undirskrifaðar Þ.Þ. Blöðin eru upphaflega blaðmerkt 3-7 en blað 43r er upphaflega blaðmerkt sem blað 2. Blöð 85r-89r virðast því vera framhald blaðs 43. Á þeim eru auk erindanna úr Númarímum:

Bærðust lauf í þægum þey … (14 erindi) og nokkrar lausavísur, s.s. Komir þú á Grænlands grund …, Konur silki - bera - bönd …, Þær sem eftir léðan leik …, Hárauð bönd um hár á sér … og margar fleiri vísur.

14 (90r)
Um söguna Selinn
Athugasemd

Vélritaður miði.

Efnisorð
15 (91r-96r)
Sturla í Blálandseyjum
Athugasemd

Skrifari: Anna Eiríksdóttir frá Skjöldólfsstöðum, Jökuldal (Laugavegi 162, Reykjavík). Undir undirskrift og frásögn Önnu hefur Hallfreður Örn Eiríksson skrifað: Skráð í janúar 1972

15.1 (91r-96r)
Sturla í Blálandseyjum
Titill í handriti

Sturla í Blálandseyjum

Upphaf

Það voru einu sinni konungur og drottning …

Niðurlag

… Undi vel og lengi í ríki sínu, með börnum sínum og þegnum. Lýkur svo þessari sögu.

16 (97r-102r)
Vísa og gátur
Athugasemd

Ein vísa og rúmlega tuttugu gátur á sex línustrikuðum blöðum (A4) sem heft eru saman.

Sigríður Haraldsdóttir á Hrafnkelsstöðum, systir Helga Haraldssonar, skráði í febrúar 1971 H.E.

16.1 (97r)
Umsögn um snjókerlingu
Titill í handriti

Umsögn um snjókerlingu

Upphaf

Líttu á kerlinguna …

Niðurlag

… og verður loks að vatni.

16.2 (97r-102r)
Gátur
Titill í handriti

Gátur

Athugasemd

Rúmlega tuttugu gátur.

Efnisorð
17 (103r-108r)
Þulur og vísur
Athugasemd

Sex línustrikuð blöð (A4) sem heft eru saman.

Sigríður Haraldsdóttir á Hrafnkelsstöðum, systir Helga Haraldssonar, skráði í febrúar 1971 H.E.

Efnisorð
17.1 (103r-108r)
Sex þulur
Athugasemd

Bokki sat í brunni …, Sat ég undir fiskahlaða föður míns …, Karl og kerling riðu á alþing …, Heyrði ég í hamrinum … (titill í hdr. Mannanafnaþula), Drengurinn minn hann Dóri, hvar var hann um jólin…, Gekk ég upp á hólinn, horfði ég ofan í dalinn ….

Þulurnar bera allar yfirskriftina Þula í hdr. nema Mannanafnaþula

.

Efnisorð
17.2 (108r)
Lét ég á það súðan hnykk …
Titill í handriti

Vísur

Upphaf

Lét ég á það súðan hnykk …

Niðurlag

… yfir hvalfiskana.

Efnisorð
17.3 (108r)
Vísur eftir Eirík Olsen
Höfundur

Eiríkur Olsen

Titill í handriti

Vísur eftir Eirík Olsen

Athugasemd

Úlfar sterki lamdi með lurk …, Stóri strákurinn stendur hér …

Efnisorð
18 (109r-122r)
Ýmis kveðskapur, bæði veraldlegur og andlegur
Athugasemd

Sjö blöð ( A4) eru klemmd saman, fimm eru vélrituð, tvö handskrifuð af Hallfreði Erni Eiríkssyni. Í sömu klemmu er sex handskrifaðir dagbókarmiðar (skrifað er báðum megin með blýanti). Þeir eru forrit vélritsins.

Guðrún Filippusdóttir f. 1884 í Kálfafellskoti í Fljótshverfi, nú á Reynimel 76, skráði í september 1970.

18.1 (109r)
Lausavísur
Athugasemd

Fjórar hestavísur, tvær kindavísur og tvær hundavísur.

Efnisorð
18.2 (110r)
Bænir
Athugasemd

Sex bænir eða sálmar.

Efnisorð
18.3 (111r)
Karl og kerling riðu á Alþing …
Efnisorð
18.4 (111r)
Ekki linnir umferð um Fljótsdalinn enn …
Upphaf

Ekki linnir umferð um Fljótsdalinn enn …

Niðurlag

… að hún hafi augnaráðin …

Athugasemd

Endar óheil.

18.5 (112r)
Bláfleðill, Leppasvunta, Hallfleða og Bokki
Athugasemd

Stutt frásögn af kirkjuferð karls og kerlingar, Bláfleðils og Leppasvuntu með börnin sín tvö, þau Bokka og Hallfleðu.

18.6 (113r)
Morgunænir
Athugasemd

Í náðarnafni þínu …, Nú er ég klæddur og kominn á ról …. Einnig á blaðinu Í þessum valta eymdardal …

Efnisorð
18.7 (114r)
Af móður Guðrúnar Filippusdóttur
Athugasemd

Hallfreður Örn Eiríksson skráði um tveimur klukkutímum eftir að Guðrún Filippusdóttir hafði sagt honum söguna.

Um Guðrún er ritað með hendi Hallferðar á blað 115r: Guðrún er hress, glaðsinna, djörf í framkomu, segir frá blátt áfram, notar ekki látbragð né handahreyfingar. Sögur voru sagðar á heimili foreldra hennar, þegar setið var við verk í baðstofunni á kvöldin (að sögn Guðrúnar).

Efnisorð
18.8 (116r-122r)
Forrit á dagbókarmiðum
Athugasemd

Að öllum líkindum eru þessir sjö 'dagbókarmiðar' forrit vélrituðu uppskriftarinnar.

19 (123r-138r)
Æskuminningar Jónínu Snorradóttur
Athugasemd

Jónína Snorradóttir samdi, nú heima á Laugavegi 51b, Reykjavík. Kom 1971, Hallfreður Örn Eiríksson.

Þetta eru ljósritaðar skrifbókaropnur, alls sextán blöð samanklemmd. Á aftasta blaði eru þrjár lausavísur eftir Símon Dalaskáld: Hingað inn með hýra kinn …, Ingibjörg með ágæti …, Dýrafjarðar drósirnar …

20 (139r-142r)
Huldufólkssaga
Athugasemd

Í bréfi sem Helga Þ. Smári sendir Hallfreði Erni Eiríkssyni, segir hún frá reynslu langömmu sinnar af huldufólki. Söguna hafði faðir hennar sagt henni en hann hafði hana frá langömmu sinni, þeirri sem reynt hafði.

Þetta eru fjögur línustrikuð blöð, samanklemmd og aðeins er skrifað á rektóhliðar.

21 (143r-144r)
Þórnaldarþula
Upphaf

Hlýði fólk fræði minni, meðan ég set sök mína á sleða…

Niðurlag

… vinstra fæti, fótur á fitlegg. Fallið hefur úr tönn.

Athugasemd

Þulan er skrifuð upp eftir Einari Kristjánssyni, Vatnsholti, Flóa 1971. Komið frá Þorvarði Magnússyni bankamanni, Bjarnarstíg 5, R.

Ljósrit . Blöðin (A4) eru klemmd saman.

Efnisorð
22 (145r-149r)
Vísur og stuttar frásagnir
Athugasemd

Fimm handskrifuð línustrikuð blöð( A4), samanklemmd. Jóhanna Guðlaugsd., Eskihlíð 22 A skráði þetta í júní 1970 (sbr. blað 145r).

23 (150r-152r)
Þulur og kvæði
Athugasemd

Málfríður Einarsdóttir í Munaðarnesi, Rauðalæk 14, skráði sumarið 1973. Vélrit.

23.1 (150r-151r)
Þorkell átti dætur tvær, …
Titill í handriti

Þorkelsþula

Upphaf

Þorkell átti dætur tvær, …

Niðurlag

… þar logaði ljós hjá systrum tveim.

Skrifaraklausa

Amma Þórhildar, María Jónsdóttir, lærði þessa þulu af Guðrúnu Hallsdóttur, móður Natans Ketilssonar. En Guðrún var stjúpa Jóns, föður Maríu. María kenndi Þórhildi þuluna. Hún mun hafa verið fædd 1833.

Athugasemd

(Skrifaraklausan er á blaði 151r).

23.2 (152r)
Drengurinn Dúni …
Upphaf

Drengurinn Dúni …

Niðurlag

… Alla daga fari hann vel.

23.3 (152r)
Drengurinn Dúni …
Upphaf

Drengurinn Dólinn …

Niðurlag

… Og þá varð hann galinn.

Athugasemd

Málfríður Einarsdóttir frá Munaðarnesi skráði í des. 1969 en hún lærði hana af Guðnýju Jónsd. í Þinganesi frá Deildartungu f. 1833 en Málfríður lærði þetta sex ára, þegar hún heyrði G. raula þuluna við barn.

við barn er viðbót, stjörnumerkt (sbr. blað 152r).

24 (153r-158r)
Enginn titill
Athugasemd

Sex ljósrituð handskrifuð blöð (A4). Þrjú eru ljósritaðar opnur úr rúðustrikaðri bók og þrjú úr línustrikaðri bók. Blöðin eru öll í sömu klemmu en skrifarar eru tveir. Á blað 153v er ritað með annarri hendi Rannveig Maj[a]sdóttir skráði hér í Reykjavík, f. í Bolungarvík. Margrét er skrifari blaða 153r-155r . Á blaði 156r stendur: Sigrún Wíum, Höfn Hornafirði skráði um eða eftir 1950.

Að því er fram kemur á blaði 158v hafa blöðin borist: Frá Bjarna Guðmundssyni póstmanni, Reykjavík, 4.7.1973.

24.1 (153r-155r)
Ferðapassi
Titill í handriti

Passi

Upphaf

Það voru lög fyrrum að menn urðu að fá sér ferðabréf hjá yfirvaldi til þess að geta ferðast frjálsir inn í annað lögsagnarumdæmi …

Niðurlag

… Enginn sóknarprestur þarf að skrifa hér upp á. Reykjavík, 5. maí 1886 Benedikt Gröndal.

Athugasemd

Rannveig Majasdóttir skráði hér í Reykjavík, f. í Bolungarvík.

Efnisorð
24.2 (156r-158r)
Þulur
Athugasemd

Sigrún Wíum, Höfn, Hornafirði skráði um eða eftir 1950.

Efnisorð
24.2.1 (156r)
Jón Smár, smellir ár …
Titill í handriti

Þula

Upphaf

Jón Smár, smellir ár …

Niðurlag

… gott sverð hann Jón minn á.

Skrifaraklausa

Þulurnar lærði eg eftir Oddnýju Sveinsdóttur, Breiðabólstaðargerði, Borgarhafnarhreppi.

Athugasemd

(Skrifaraklausan er á blaði 156r). Með annarri hendi er ritað með penna: amma sr. Jón (!) Kr. Ísfelds í Búðardal.

Efnisorð
24.2.2 (157r)
Gekk ég upp á hólinn að brýna mér ljá …
Titill í handriti

Þula

Upphaf

Gekk eg upp á hólinn að brýna mér ljá …

Niðurlag

… senn er mál lömbunum að stýja.

Efnisorð
24.2.3 (157r)
Gekk ég upp á hólinn, leit eg ofan í dalinn …
Titill í handriti

Þula

Upphaf

Gekk eg upp á hólinn, leit eg ofan í dalinn …

Niðurlag

… ekki meira en við er haft.

Athugasemd

Þulan hefst hægra megin á blaðinu en niðurlagið er vinstra megin.

Á blaði 158r er annað ljósrit, síður læsilegt, af sömu þulu.

Efnisorð
25 (159r-168r)
Kvæði eftir Þórð Grunnvíking
Athugasemd

Átta handskrifuð línustrikuð blöð (A4) (+ tveir miðar með efnisviðbótum hér merktir 161b og 164b) og tvö vélrituð blöð. Tekið hefur verið neðan af blaði 166r. Blöðin eru saman í klemmu en blöð 159r-166r eru einnig heft saman.

25.1 (159r-165r)
Fremur áður fjörugt var …
Höfundur

Þórður Grunnvíkingur

Titill í handriti

Formannavísur úr Árneshreppi, haustið 1896

Upphaf

Fremur áður fjörugt var …

Niðurlag

… Guð á hæðum leiði.

Athugasemd

Þrjátíu og níu erindi - handskrifuð. Tveimur erindum (er. 17 og 33), á blöðum 161b og 164b er bætt við síðar ásamt tölusetningu erinda. Hugsanlega er um sama skrifara að ræða en blekið er ljósara en á textanum almennt.

Á blaði 166r er kvæðið Ófeigur eftir Tómás víðförla sem hefst Girnist veiði Guðmundur ….

Á blaði 166v er önnur vísa sem hefst svo: Þórólfs brenni vænan ver …. Vísan er rituð með hönd H.E.. Undir vísunni stendur: Jósep Húnfjörð orti, skráð eftir Agnari Jónssyni, f. 1889, nú Bjar.borg 8, R. 24. mars 1972 H.E

25.2 (167r-168r)
Víkingsbragur
Höfundur

Þórður Grunnvíkingur

Titill í handriti

Víkingsbragur

Upphaf

Á Kjörvogi inni frá …

Niðurlag

… þessi stutta ríma.

Athugasemd

Jósef Húnfjörð hefur á blaði 168v bætt við vélritaða uppskrift Víkingsbrags einu erindi til: En hans faðir aldraði …

Neðan við erindið er skrifað: Gísli Guðlaugsson skráði 1972, eftir Agnari Jónssyni frá Hrauni í Árneshreppi í Strandasýslu, lærði af frændum sínum sem lærðu braginn af Jósep Húnfjörð, sem smíðaði bátinn 1897.

26 (169r-191r)
Kvæði og lausavísur
Athugasemd

Tvö bréf og kveðskapur; skráð af Sigurbirni Jónssyni. Fyrra bréfið er dagsett 23. október 1972 og það síðara 22. apríl 1973

27 (192r)
Lesbók Tímans - leiðréttingarbeiðni
Athugasemd

Filippus Gunnlaugsson, Hagamel 29, Reykjavík biður hér Hallfreð Örn Eiríksson, á Handritastofnun Íslands að leiðrétta misritun sem orðið hafi á nafni afa síns, Magnúsar Magnússonar á Hrófbergi , í Lesbók Tímans. Afi hans var Magnússon en ekki Einarsson eins og þar virðist hafa komið fram.

Sömuleiðis kemur hann með annað upphaf á vísuna um Jón þröst í tilefni af fyrra parti sem hafður var eftir Guðmundi Ragnari Guðmundssyni í Bæ á Selströnd.

Bréfið er skrifað á bréfsefni og í haus er F. Gunnlaugsson P.O. Box 733 - Reykjavík - Iceland. Fyrir neðan er vélritað heimilisfang: Hagamel 29.

28 (193r-203r)
Kvæði og rímur
Athugasemd

Tvö vélrituðu blöð, miði og níu ljósrit. Efni sem Guðbjörg Jónsdóttir, sem lengi bjó á Hrútsstöðum í Laxárdal, skráði í elli.(Sjá blað 193r og meðfylgjandi miða 194br). Á blöðum 193r-194ar eru lausavísur, m.a. vísan: Tíu ára tel ég barn … og þulan: Fór ég til berja fyrra sunnudag …

28.1 (195r-203r)
Rímur af Líódel riddara og hans kvinnu skrifaðar anno 1858
Titill í handriti

Rímur af Líódel riddara og hans kvinnu skrifaðar anno 1858

Upphaf

Athugasemd

195r-203r eru ljósrit af bókaropnum. Hægra megin á blaði 195r er skreytt titilsíða þar sem nafn rímunnar kemur fram. Ríman er í tveimur flokkum og er fyrri ríman/flokkurinn 82 erindi og sú síðari 56.

Efnisorð
29 (204r-205r)
Af Hjalta Jónssyni á Selhúsum í Skjaldfannardal, Nauteyrarhreppi.
Upphaf

Hjalti Jónsson bjó nokkuð lengi á Selhúsum …

Niðurlag

… Ég sá helvítið þegar hann kom upp um loftsgatið og greip krumlunum utan um lampaglasið.

Skrifaraklausa

Þetta er ein sagan um fylgju.

Athugasemd

Skrifaraklausan er á blaði 205r

Ásgeir Ingvarsson mælingamaður, Víðihvammi 2 segir frá.-

30 (206r-218r)
Gátur og ýmis kveðskapur
Athugasemd

Þrettán ljósrit (blöð A4) af handskrifuðu efni. Guðbjörg Jónsdóttir, fædd í þrándarkoti í Laxárdal 1876, skráði á níræðisaldri a.m.k. hluta efnisins (sjá t.d. 206r-209r). Yngri hönd eða hendur er einnig að finna (sjá t.d. blöð 209r-210r).

Efnisorð
31 (219r-222r)
Hestavísur
Athugasemd

Fjögur vélrituð blöð (A4). Þetta eru tvö sendibréf til Handritastofnunar Íslands og Hallfreðar Arnar Eiríkssonar frá Jökli Péturssyni. Annað bréfið er dagsett 3. apríl 1972 og hitt 5. maí 1972. Jökull gerir þar grein fyrir aðsendu efni sínu sem eru hestavísur eftir hann sjálfan og aðra.

32 (223r-230r)
Sögur af fólki og fyrirbærum
Athugasemd

Átta handskrifuð línustrikuð blöð (A4) saman í klemmu. Þetta er ódagssett bréf til Hallfreðar Arnar Eiríkssonar frá Gróu Jóhannsdóttur (sjá Kennaratal). Í bréfinu eru frásagnir af tröllum og huldufólki ásamt sannri sögu og smáskrýtlu sem hún segir einnig sanna.

33 (231r-235r)
Draumar og draumaráðningar
Athugasemd

Fimm handskrifuð línustrikuð (A4) blöð, saman í klemmu. Þetta er bréf til Hallfreðar Arnar Eiríkssonar frá Gróu Jóhannsdóttur, dóttur Jóhanns Kr. Ólafssonar, Litla-Skarði, sjá Kennaratal … (sbr. 231r). Bréfið er dagsett í Galtarholti 8. apríl 1972 Í því eru draumaráðningar, draumur og lausavísa (Jói raftur, ruslara kjaftur … eftir Guðjón Gíslason um Jóhann Valdimarsson).

34 (236r-237r)
Efni samkvæmt spólu - hljóðritun 1972
Athugasemd

Tvö handskrifuð línustrikuð blöð (A5), saman í klemmu. Eftst á blað 236r er skrifað: Sbr. spólu í febrúar, hljóðritun 1972. Á blaðinu er minnst á þrjá drauma o.fl.Á blaði 236v eru nefndar nokkrar hestavísur, s.s. Rauður bera manninn má …, Rauður minn er sterkur stór …, Fallega Skjóni fótinn ber …, Litli Skjóni leikur sér …, Litla Jörp með lipran fót …. Á blaði 237v er nafn Guðrúnar Filippusdóttur, f. 31. ágúst 1884, Kálfafellsholti. Undir fyrirsögninni: "Nokkur orð" eru orðskýringar og heiti á tveimur þulum: Hatturinn dembir …, Karlinn hét Blábleðill, kerlingin Leppasvunta … Blað 237r er autt.

35 (238r-242r)
Stutt frásögn og vísur
Athugasemd

Fjögur handskrifuð blöð (A5) og vélritaður miði saman í klemmu. Efni er skráð eftir Valdimar B. Valdimarssyni , líklega 20. júlí 1970 (sbr. blað 238r, neðst).

Vísan: Útlitið er ekki tryggt …, eftir Valdimar, er á blaði 242r (vélritaður miði).

36 (243r-250r)
Vísur eftir Jón Arnórsson og syni hans tvo, Árna Jónsson og Arnór Jónsson
Athugasemd

Sjö handskrifuð línustrikuð blöð (A5) og umslag saman í klemmu. Efni er skráð af Olgu Sigurðardóttur, Hjarðarhaga 36, 1972 (sbr. blöð 243r og 250r).

Á umslaginu (blaði 243r) kemur fram, auk nafns Olgu, nafn Indriða Jónssonar bróðir Arnórs?, verkstjóra, Hjarðarhaga 28.

37 (251r-252r)
Í þoku; frásögn Guðrúnar Guðmundóttur
Titill í handriti

Í þoku

Athugasemd

Tvö handskrifuð línustrikuð blöð (A5), annað er aðeins efri hluti blaðs. Efni er skráð 1972 af Guðrúnu Guðmundsdóttur, frá Melgerði. Nú á Grund elliheim.

38 (253r-256r)
Málshættir og vísur
Athugasemd

Fjögur handskrifuð línustrikuð blöð, saman í klemmu. Efni er skráð á Sólvangi í Hafnarfirði 1. apríl 1972 af Guðlaugi E. Einarssyni, f. 1883 (sbr. blöð 253r og 256r. Á blaði 256 eru vísur sem líklega eru eftir Guðlaug sjálfan.

39 (257r-275r)
Harmagrátur eftir 19. aldar skáld og fl. efni
Athugasemd

Saman í umslagi eru tvö gömul kver í 8vo (8+6 (ósaumuð) og fjögur gömul blöð í kvartó (1 + tvíblöðungur + 1. samanbrotin hvert utan um annað). Efni er skráð af sr. Markúsi á Stafafelli, (sbr. blað 257r). Meðal efnis er Harmagrátur eftir ýmis 19. aldar skáld, alls 56 erindi og Skröggskvæði.

40 (276r-287r)
Lallabragur og vísur um Lárus H. Bjarnason, setudómara í Skúlamálunum
Athugasemd

Tólf blaða (A4) hefti, tvö auð blöð fremst og aftast og tíu vélrituð. Uppruna vantar.

41 (288r-292r)
Gamlar barnagælur
Titill í handriti

Gamlar barnagælur

Athugasemd

Fimm blaða hefti (A4), vélritað. Efnið var þulið inn á segulband 25. október 1970 af Ingu Jóhannesdóttur, Garði í Grímsey. Inga er fædd 20. maí 1874 og var því á 97. árinu er hún fór með þessar þulur (sbr. blað 288r). Í heftinu eru þulurnar Róum við í selinn …, Stígum við stórum …, Heyrði ég í hamrinum …, Gullbúinn gimbill …, Karl og kerling riðu á Alþing …, Lóa Lóa lítil tá …, Poki valt til hnausa …

Efnisorð
42 (293r-297r)
Samtíningur Jónínu H. Snorradóttur - Kvæði eftir Bjarna Jónsson
Titill í handriti

Samtíningur Jónínu H. Snorradóttur

Athugasemd

Fimm ljósritaðar, handskrifaðar bókaropnur (A4); vinstri síður opnanna eru auðar að undanskilinni síðustu opnunni þar sem skrifað er á báðar síður og á þá fremstu er skrifað Ása 12790 (sennilega símanúmer) og Útsalir hjá Marbakka. Samkvæmt því sem fram kemur á blaði 293r er skrifari efnis Jónína H. Snorradóttir, nú til heimilis Laugavegi 51 b og efnið Kom 1971 H.E. Jónína fjallar lítilsháttar um æsku sína og uppruna en mestmegnis um móður sína, Margréti Jósefsdóttur. Í lokin eru nokkrar lausavísur eftir Bjarna Jónsson, Akureyri.

43 (298r-304r)
Sögur, vísur, málshættir og gamanmál
Athugasemd

Þrjú handskrifuð, línustrikuð blöð (A4), þrjú handskrifuð, línustrikuð blöð (A5) og blaðbútur (efsti hluti blaðs (A4)). Blöðin eru skrifuð af Guðbjörgu Jónasdóttur á Sellandi, 5. apríl 1969 (sbr. blað 298r).

44 (305r-366r)
Kvæði, lausavísur og fleira
Athugasemd

Um feril bókarinnar er skrifað á blað 307v með hendi Hallfreðar Arnar Eiríkssonar: Sigríður Jónsdóttir fékk þetta kver austur á Jökuldal hjá manni sem Björgvin hét Guðnason frá Grunnavatni á Jökuldalsheiði, f. 23. september 1898, nú á Kleppsv. 24, R.

Meðal efnis er: Ríma af enskum stúdent (Ansa eg þannig ykkur fljóð …, 156 erindi), Hjartnæmt sorgarkvæði (Kvölda tekur, dagur dvín …, 105 erindi), hestavísur og fleira.

Blöð 315r-318v eru auð sem og blöð 366r-366v

45 (367r-389r)
Kvæði og þulur
Athugasemd

Í einni klemmur eru skrifbók (upphaflega höfuðbók, merkt sem slík, þ.e. Bréfaskóli S.Í.S. Höfuðbók) og sjö mismunandi blöð að stærð og gerð. Innihaldið er kveðskapur af ýmsu tagi, handskrifað af Sveinsínu Ágústsdóttur, 1970 - 1971 (sbr. blöð 367r, 368r og 388r). Þar eru meðal efnis þulurnar: Táta, Táta …, Tíknin hennar Leifu … og Sat ég undir fiskahlaða föður míns …

46 (390r-391r)
Gamalt kvæði
Titill í handriti

Gamalt kvæði. Óþekktur höfundur

Upphaf

Utanlands í einum bý …

Niðurlag

… kappkostum því krossinn hans að bera.

Athugasemd

Tvö handskrifuð blöð (A5 ca), samanklemmd. Sigríður Jónsd., f. 23. september 1898, nú á Kleppsvegi 24 (4. maí 1971), skráði eftir minni af móður sinni. Segir það [þ.e. kvæðið (v.h.)] vera eftir Guðmund Bergþórsson (sjá blað 391v).

47 (392r-394r)
Kvæði
Athugasemd

Þrír rúðustrikaðir pappírsseðlar saman í klemmu. Blað 392 er stakt en blöð 393r-394v mynda tvinn en rifnað hefur upp í það þannig að einungis neðsti hluti þess hangir saman.

Tvær hendur.

47.1 (392r-392v)
Kalt var mér á Kópaskeri …
Höfundur

Jón Guðmundsson, Garði í Þistilfirði

Titill í handriti

Ferðavísur

Upphaf

Kalt var mér á Kópaskeri …

Niðurlag

… geisla af snauðs manns höfðingslund.

Athugasemd

Jón Guðmundsson frá Garði í Þistilfirði orti um 1920. Kvæðið er komið frá Sigríði Jónsdóttur sem lærði kvæðið þegar hún var ung en hún skráði það ekki sjálf. (4. maí 1971) (sjá blað 392v).

47.2 (393r-394v)
Þó bíði vötn í löndum …
Höfundur

Guðmundur Pálsson, Þórólfsstöðum

Titill í handriti

Kappatal

Upphaf

Þó bíði vötn í löndum …

Niðurlag

… og kerrur margar sá.

Athugasemd

Davíð Kristjánsson, lengi á Húsavík, f. 14. júní 1859, d. 2. janúar 1925 (sjá blað 393v).

48 (395r-401v)
Þulur
Athugasemd

Bergljót Kristjánsdóttir úr Þingeyjarsýslu, Borgarholtsbraut 41, Kópavogi skráði efnið í kringum1968 (sbr. blað 395r. Í uppskriftinni eru þulurnar: Drengurinn dólinn …, Sat ég undir fiskahlaða föður míns …, Hér læt ég skurka fyrir skáladyrum …, Bokki sat í brunni…, Tólf postular drottins …, Poki fór til Hnausa …

Efnisorð
49 (402r-403v)
Fossarnir í Soginu
Athugasemd

Tvö handskrifuð línustrikuð blöð (misstór), heft saman. Guðmundur Kolbeinsson skráði 15. febrúar 1967 (sbr. blað 403v). Í uppskriftinni er fjallað um fossana fjóra sem voru í Soginu áður en það var virkjað en þeir voru Kistufoss, Írufoss, Ljósifoss og Ölfoss.

50 (404r-406v)
Kvæði og þulur
Athugasemd

Þrjú handskrifuð línustrikuð blöð (rifin úr stílabók), heft saman. Hallfreður Örn Eiríksson? skráði eftir handriti Hjalta Jónssonar í Hólum, 3. september 1964 (sbr. blað 404r). Í uppskriftinni er Ókindarkvæði (Það var barn í dalnum … (sjá um Ókindarkvæði: Jón Samsonarson 1998: 22-33, 249-250 ) og þulurnar: Sat ég undir fiskahlaða föður míns …, Heyrði ég í hamrinum … og Gekk ég upp á hólinn / leit ég ofan í dalinn …

51 (407r-417v)
Sagnir og þjóðlegur fróðleikur
Athugasemd

Ellefu handskrifuð línustrikuð blöð (A5), í fjórum heftum, skrifuð af Þorbjörgu Kristjánsdóttur Langagerði 67, Reykjavík, árið 1968 (sbr. blað 407r). Í uppskriftunum eru frásagnir af atburðum sem Þorbjörg hefur sjálf reynt eða heyrt talað um, þ.e. frásagnir af huldufólki og draumum og hún fjallar einnig um spádómsmerkingu spila.

52 (418r-426v)
Þulur og kvæði
Titill í handriti

Þulur

Athugasemd

Níu handskrifuð línustrikuð blöð úr vasabók (samanheft).

Á blaði 426v stendur:Gömlu hjónin í Neskaupstað, Sigríður og Páll(sbr. blað 426v) og er efnið líklega frá þeim komið.

Í uppskriftinni eru bæði þulur og kvæði en á blaði 418r er innihald sagt vera þulur og sömuleiðis er þess getið á blaði 426v með hendi Hallfreðar Arnar Eiríkssonar. Yelena Sesselía Helgadóttir telur að hér sé ekki einungis um þulur að ræða og eftirfarandi aðgreining efnis styðst við óbirta innihaldsgreiningu hennar:

Hafið þið heyrt um ána og hetjuna hann Stjána … (kvæði); Dóttirin mín fríða hversu lengi ætlar þú … (kvæði); Nú skal kveða um klafann … (e-t keðjuljóð); Gekk ég út á hólinn horfði oní dalinn… (þula); Laufabrauðsvísa (Hljóti sú sem hlemminn fær … (lausavísa), undir vísunni er nafnið Brandfríður Benónýsdóttir (höf.?));Seinasta ferðin (Fögur seinasta ferðin er … (lausavísa) undir vísunni er nafnið Jónas Þorsteinsson (höf.?)); Karl fór yfir á … (þula); Gengum saman … (undir kvæðinu er nafnið Ásmundur Jónsson (höf.?)); Sat ég undir fiskahlaða föður míns … (þula); Kom blessuð sól … (undir kvæðinu er nafnið Jónas Þorseinsson (höf.?)).

53 (427r-428v)
Heyrðu góða hringatróða …
Upphaf

Heyrðu góða hringatróða …

Athugasemd

Tvö laus handskrifuð línustrikuð blöð (A5). Magnús Þórðarson verkamaður, Lönguhlíð úr Mýrdal skráði í júní 1969 (sbr. blað 427r).

Þrettán erindi.

54 (429r)
Pippin pó …
Titill í handriti

Vögguljóð úr Fljótum í Skagafirði

Upphaf

Pippin pó …

Athugasemd

Eitt vélritað blað (A4).

Eiríkur Stefánsson kennari skráði árið 1968 (sbr. blað 429r).

Einhvers konar þula (skv. óbirtri útekt Yelenu Sesselíu Helgadóttur)

Efnisorð
55 (430r-431v)
Sendibréf og gáta
Athugasemd

Tvö handskrifuð línustrikuð blöð (A4). Björn Jónsson, Kóngsbakka í Helgafellssveit skráði, 4. mars 1969 (sbr. blað 430r).

55.1 (430r)
Sendibréf
Athugasemd

Bréfið er frá Birni sem segist með sendingunni gera tilraun til að uppfylla gefið loforð.

55.2 (431r-431v)
Hljóp ég inn að höllum …
Höfundur

Össur Jónsson (Hlíðarskáld)

Titill í handriti

Gáta

Upphaf

Hljóp ég inn að höllum …

Efnisorð
56 (432r-438r)
Þulur, kvæði, húsgangar og leikir
Athugasemd

Sjö handskrifuð línustrikuð blöð (A4). Þessi blöð fylgja sennilega blöðunum sem skráð eru í lið 55 en Björn Jónsson, Kóngsbakka í Helgafellssveit, skráði þau 4. mars 1969 (sjá blað 430r). Engar upplýsingar fylgdu með blöðunum en höndin viðrist sú sama og á fyrrnefndum blöðum.

56.1 (432r-434r)
Þulur
Titill í handriti

Þulur

Upphaf

Gekk ég upp á hólinn / horfði ofaní dalinn …;

Athugasemd

Kvæði sem fyrir koma byrja svo:

Efnisorð
56.2 (434r)
Grýlukvæði
Titill í handriti

Grýlukvæði

Upphaf

Grýla reið með garði …;

Athugasemd

Kvæði sem fyrir koma byrja svo:

Efnisorð
56.3 (435r)
Gamlir húsgangar
Titill í handriti

Gamlir húsgangar

Upphaf

Boli, boli bankar á hurð, með bandinu sínu langa …;

Athugasemd

Kvæði sem fyrir koma byrja svo:

Efnisorð
56.4 (436r-438r)
Barnaleikir
Titill í handriti

Barnaleikir

Athugasemd

Ýmsir leikir, m.a. Skollaleikur.

Efnisorð
57 (439r-443r)
Draumur í desember 1957
Athugasemd

Fimm handskrifuð línustrikuð blöð (A5). Blöðin eru slitin á brotum. Vilhjálmur Jónsson, Urðarvegi 15, lengi á Hrafnistu, skráði. Blöðin bárust 1968 (sjá blað 443r).

Efnisorð
58 (444r-445v)
Draumaráðningar
Athugasemd

Tvö handskrifuð línustrikuð blöð (A5). Kjartan Leifur Markússon skráði í júní 1964 (sjá blað 445v).

59 (446r-457r)
Gamli Garðhúsabærinn
Athugasemd

Tólf handskrifaðir miðar (ekki línustrikaðir), 1+ 11, blaðsettir 1-10, blöð 446 og 457reru ónúmeruð. Svava Þorsteinsdóttir (Þorleifsdótti?), Hringbraut 37, Reykjavík, skráði 1965 (sjá blað 454v). Á blaði 446r er mynd af Garðhúsabænum og á blaði 447r eru upplýsingar um Bjarna Oddsson og Þuríði Eyjólfsdóttur og þær upplýsingar hugsanlega fengnar úr tímaritinu Akranes frá 1942 (stofnár ritsins). Ef hér eru um Garðshús á Akranesi að ræða þá er líklegt að skrásetjarinn sé Svava Þorleifsdóttir fyrrum skólastjóri á Akranesi. Skráningu hefur greinilega ekki verið lokið þar sem setningin Róið var … endar án niðurlags á blaði 457r.

60 (458r-461r)
Lítil saga af veðri og aflabrögðum
Titill í handriti

Lítil saga

Athugasemd

Fjögur handskrifuð línustrikuð blöð (úr skrifblokk). Samanheft en einnig fest saman með límbandsbút. Þórður Guðmundsson Vífilsgötu 21, skráði í september 1971 (sjá blað 461r).

61 (462r-470r)
Tvær sögur af pilti og stúlku
Titill í handriti

Lítil saga

Athugasemd

Níu handskrifuð línustrikuð blöð (úr skrifblokk). Samanklemmd. Þórður Guðmundsson Vífilsgötu 21, skráði í nóvember 1971 (sjá blað 464r).

61.1 (462r-464r)
Lánlausi pilturinn sem fann enga lykt
Titill í handriti

Lítil saga

Skrifaraklausa

Skrifað 5. nóvember 1971

Athugasemd

(Skrifaraklausan er á blaði 464r).

61.2 (465r-470r)
Pilturinn og steinbítshausinn
Titill í handriti

Lítil saga

Skrifaraklausa

Þ.G.

Athugasemd

Skrifaraklausan er á blaði 470r). Þetta er eldgamalt og hefur gengið mann frá manni. Ég held ég hafi heyrt þetta fyrst hjá afa mínum. Þeir voru að grínast tveir gamlir, karlar, sagði Þórður Guðmundsson, fyrrum stýrimaður, Vífislgötu 21. Lengi á Akraborginni.

62 (471r-473r)
Kvæði
Athugasemd

Þrjú ljósrituð vélrituð blöð (A4). Samanklemmd. Þessar vísur á þremur blöðum lét Þórður Guðmundsson fyrrum stýrimaður á Akraborginni ‹mig› hafa (áður á Laxfossi) í maí 1971 (sjá blað 471r).

Fimmtán vísur um Laxfoss (ein eftir Ref bónda (3. júlí 1951)) og þrjár um Akraborg. Einnig eru þrjár vísur ortar til stýrimannsins.

Efnisorð
63 (474r-483r)
Kvæði - þula
Athugasemd

Tíu ljósrituð, línustrikuð og handskrifuð blöð. Ljósritin sem eru af blöðum úr stílabók eru klemmd saman. Ljósritin eru ýmist af stöku blaði eða opnu bókarinnar.

Úr kvæðabók, sem Jón Ófeigsson bóndi, nú á Hafnarnesi. Reykjavík, 6. desember 1971, Hallfreður Örn Eiríksson

Meðal efnis eru lausavísur og kvæði. Einnig er Þornaldarþula (Hlyti fólk fræði minni …) eins og Oddný á Gerði hafði hana.

64 (444r-488v)
Frásögn af Margréti Þorvarðardóttur og örlögum hennar
Athugasemd

Fimm brúnleit blöð, fjögur handskrifuð og eitt autt (tekið hefur verið neðan af því, þ.e. blaði 488r).

Líklega hefur Þórhallur á Breiðavaði skrifað þetta 1965. H.E.

bóndi á Breiðavaði í Eiðaþinghá (sbr. blað 488v).

65 (489r-493v)
Þulur
Athugasemd

Fjögur ljósrituð, vélrituð blöð og eitt handskrifað sendibréf frá Hrafnkeli Ársælssyni (sjá blað 489r).

Samkvæmt bréfinu eru þetta þulur uppskrifaðar af föður mínum, Ársæli Sigurðssyni, eftir minni, en hann var uppalinn í Ölfusinu og mun hafa lært þær báðar þar.

65.1 (489r-491v)
Hann tók upp og hann tók niður …
Titill í handriti

Gömul þula

Upphaf

Hann tók upp og hann tók niður …

Niðurlag

pípustokku, ristkambur, tábein og á þinn fót síðan…

Athugasemd

Ársæll Sigurðsson trésmiður, Hringbraut 97, lærði þessa þulu líklega í Ölfusinu, en þar ólst hann upp í æsku. Hann skráði hana 1969 eða 1970.

H.E.

Barst hingað í apríl 1971 (sbr. blað 491v).

Efnisorð
65.2 (492r-493v)
Og tréð lá á þeim velli - velli …
Upphaf

Og tréð lá á þeim velli - velli …

Niðurlag

… kvisturinn var á trénu og tréð lá á þeim velli - velli.

Athugasemd

Ársæll Sigurðsson smiður, Hringbraut 97, sem var uppalinn í Ölfusinu, skráði þessa þulu. Hann mun hafa lært hana í æsku. Hann mun hafa skráð þessa þulu 1969 eða 1970.

Barst hingað í apríl 1971.

H.E.(sbr. blað 493v).

Efnisorð
66 (494r-494v)
Þátturinn í sagnaleit
Titill í handriti

Þátturinn í sagnaleit

Athugasemd

Eitt handskrifað línustrikað blað (A4). Bréf og frásögn frá Guðlaugu Matthíasdóttur, Bjargi, Hrunamannahreppi, 5. desember 1971

Efnisorð
67.1 (494r-494v)
Kálfarnir í Bryðjuholti
Titill í handriti

Kálfarnir í Bryðjuholti

Efnisorð
67 (495r-506r)
Ýmis kveðskapur
Athugasemd

Tíu handskrifuð blöð í mismunandi broti saman í klemmu. Efnið Samanber segulbandsspólu E 71/5. Gísli Guðlaugsson frá Steinatúni skráði, veturinn 1970 - 1971

68 (506r-507r)
Ýmis kveðskapur
Athugasemd

Tíu handskrifuð blöð í mismunandi broti saman í klemmu.Samanber segulbandsspólu E 71/5 Gísli Guðlaugsson frá Steinatúniskráði, veturinn 1970 - 1971

Lýsing á handriti

Blaðefni

Mismunandi pappír.

Blaðfjöldi
Mismunandi stærðir blaða.( mm x mm).
Umbrot

Mismunandi.

Ástand

Misjafnt.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Skriftin …

Band

Óbundið… ( mm x mm x mm). Handritið er varðveitt í hvítri pappaöskju sem merkt er með penna og blýanti: HÍ 30. Þjóðfræði (Vaxandi safn) Gátur, þulur, vísur, sagnir … Efni handritsins er flokkað eftir heimildamönnum og hefur það borist Stofnuninni á seinni hluta síðustu aldar.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á 20. öld.

Ferill

Þjóðfræðiuppskriftir frá Hallfreði Erni Eiríkssyni.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið í júní 2010

Notaskrá

Efni skjals
×
  1. Sagnir
  2. Sagnir
  3. Kveðskapur eftir ýmsa höfunda
    1. Tígull fyrstum frá mig lystir greina …
    2. Tígull fyrstum frá mig lystir greina …
    3. Óðar blands …
    4. Blossa ála bríkin mær …
    5. Hestinn Garp að heiti skarpan átti …
    6. Ellin gerir ýmsum bágt …
    7. Hestinn Garp að heiti skarpan átti …
  4. Draumur Elísabetar Þorleifsdóttur
    1. Draumur Elísabetar Þorleifsdóttur
  5. Sjóferðavísur, lausavísur, vísur úr rímum
    1. Eykst nú leiði um álajörð
    2. Ofan lúðir fjallið fóru …
    3. Númi hvítum hesti reið …
  6. Sendibréf, kvæði og vísur
  7. Sendibréf með vísum Þorgils Þorgilssonar
    1. Árstíðavísur
  8. Sagnir
  9. Sagnir, m.a. um Valda sóma og Jakob Guðmundsson
  10. Sendibréf
  11. Þulur, kvæði, gátur og danslagatextar
    1. Jólaþulur
    2. Kvæði
    3. Gátur
    4. Danslagatextar
    5. Hluti af gamalli þulu
    6. Kerling heitir Grýla …
    7. Gamlar vísur
  12. Enginn titill
    1. Grýluþulur
    2. Dúðadurtskvæði
    3. Krummavísur
    4. Gilsbakkaþula
    5. Þulur
    6. Krummavísur
    7. Hermann kemur ríðandi …
    8. Þulur
    9. Dýraþulur
    10. Barnagælur
  13. Ýmsar vísur og kvæði
  14. Um söguna Selinn
  15. Sturla í Blálandseyjum
    1. Sturla í Blálandseyjum
  16. Vísa og gátur
    1. Umsögn um snjókerlingu
    2. Gátur
  17. Þulur og vísur
    1. Sex þulur
    2. Lét ég á það súðan hnykk …
    3. Vísur eftir Eirík Olsen
  18. Ýmis kveðskapur, bæði veraldlegur og andlegur
    1. Lausavísur
    2. Bænir
    3. Karl og kerling riðu á Alþing …
    4. Ekki linnir umferð um Fljótsdalinn enn …
    5. Bláfleðill, Leppasvunta, Hallfleða og Bokki
    6. Morgunænir
    7. Af móður Guðrúnar Filippusdóttur
    8. Forrit á dagbókarmiðum
  19. Æskuminningar Jónínu Snorradóttur
  20. Huldufólkssaga
  21. Þórnaldarþula
  22. Vísur og stuttar frásagnir
  23. Þulur og kvæði
    1. Þorkell átti dætur tvær, …
    2. Drengurinn Dúni …
    3. Drengurinn Dúni …
  24. Enginn titill
    1. Ferðapassi
    2. Þulur
      1. Jón Smár, smellir ár …
      2. Gekk ég upp á hólinn að brýna mér ljá …
      3. Gekk ég upp á hólinn, leit eg ofan í dalinn …
  25. Kvæði eftir Þórð Grunnvíking
    1. Fremur áður fjörugt var …
    2. Víkingsbragur
  26. Kvæði og lausavísur
  27. Lesbók Tímans - leiðréttingarbeiðni
  28. Kvæði og rímur
    1. Rímur af Líódel riddara og hans kvinnu skrifaðar anno 1858
  29. Af Hjalta Jónssyni á Selhúsum í Skjaldfannardal, Nauteyrarhreppi.
  30. Gátur og ýmis kveðskapur
  31. Hestavísur
  32. Sögur af fólki og fyrirbærum
  33. Draumar og draumaráðningar
  34. Efni samkvæmt spólu - hljóðritun 1972
  35. Stutt frásögn og vísur
  36. Vísur eftir Jón Arnórsson og syni hans tvo, Árna Jónsson og Arnór Jónsson
  37. Í þoku; frásögn Guðrúnar Guðmundóttur
  38. Málshættir og vísur
  39. Harmagrátur eftir 19. aldar skáld og fl. efni
  40. Lallabragur og vísur um Lárus H. Bjarnason, setudómara í Skúlamálunum
  41. Gamlar barnagælur
  42. Samtíningur Jónínu H. Snorradóttur - Kvæði eftir Bjarna Jónsson
  43. Sögur, vísur, málshættir og gamanmál
  44. Kvæði, lausavísur og fleira
  45. Kvæði og þulur
  46. Gamalt kvæði
  47. Kvæði
    1. Kalt var mér á Kópaskeri …
    2. Þó bíði vötn í löndum …
  48. Þulur
  49. Fossarnir í Soginu
  50. Kvæði og þulur
  51. Sagnir og þjóðlegur fróðleikur
  52. Þulur og kvæði
  53. Heyrðu góða hringatróða …
  54. Pippin pó …
  55. Sendibréf og gáta
    1. Sendibréf
    2. Hljóp ég inn að höllum …
  56. Þulur, kvæði, húsgangar og leikir
    1. Þulur
    2. Grýlukvæði
    3. Gamlir húsgangar
    4. Barnaleikir
  57. Draumur í desember 1957
  58. Draumaráðningar
  59. Gamli Garðhúsabærinn
  60. Lítil saga af veðri og aflabrögðum
  61. Tvær sögur af pilti og stúlku
    1. Lánlausi pilturinn sem fann enga lykt
    2. Pilturinn og steinbítshausinn
  62. Kvæði
  63. Kvæði - þula
  64. Frásögn af Margréti Þorvarðardóttur og örlögum hennar
  65. Þulur
    1. Hann tók upp og hann tók niður …
    2. Og tréð lá á þeim velli - velli …
  66. Þátturinn í sagnaleit
    1. Kálfarnir í Bryðjuholti
  67. Ýmis kveðskapur
  68. Ýmis kveðskapur

Lýsigögn