„Málsháttasafn Kristínar Árnadóttur“
Á bl. 1 er formáli eftir Jón Samsonarson, dagsettur 27. ágúst 1969.
Tvær hendur, snarhönd. Kristín Árnadóttir skrifaði sjálf lausu blöðin og sneplana en sonardóttir hennar Rósa Björnsdóttir skrifaði stílabækurnar eftir ömmu sinni.
Handritið er óinnbundið, pakkað í umbúðapappír og tvö pappaspjöld bundin um pakkann.
Sigurgeir Steingrímsson vélritaði.
Bundið í tveimur hlutum (bl. 1-135 og 136-275; blaðnúmeri 149 er sleppt. Bl. 240 er í tvíriti (aftara blaðið afrit með kalkipappír); titilsíður eru ótölusettar).
Vélritað víða á innri spássíu. Leiðréttingar og athugasemdir á spássíu á stöku stað, m. blýanti og vélritað.
Númer á innri spássíum tákna nr. blaða handrits sem vélritað var eftir.
Afrit af vélritinu með kalkipappír fylgir með innpakkað í umbúðapappír og tvö pappaspjöld bundin um pakkann.
Band frá ca 1969.
Grár og svartur marmarapappír á pappaspjöldum. Grár líndúkur á kili.
2 jólakort og 4 sendibréf til Kristínar fylgja með.ÞS skráði 2. maí 2008.