Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

NKS 1851 a 4to

Succincta Narratio de TYPHOGRAPHIA ISLANDORUM, 1754

Titilsíða

Succincta Narratio de TYPHOGRAPHIA ISLANDORUM. Sire Artis Typographicæ in Islandia initiis, incrementis, sedibus, fatis, aliisgz ad hanc matcriam pertinentibus, auctore GUNNARO PAULI Filao. A. æræ Christianæ MDCCLIV. (Bl. 1r).

Tungumál textans
latína (aðal); íslenska

Innihald

(1r-37v)
Succincta Narratio de TYPHOGRAPHIA ISLANDORUM
Titill í handriti

Typographiæ Islandorum. Cap. I. De Johanne Sveco, Primo apud Islandos Typographo.

Upphaf

Artem et officinam Typographicam primus ...

Niðurlag

... Sparturn illi hodieg ornatt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
37 blöð (193-196 mm x 154-158 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking 1-72 með blýanti á efri spássíu á hverri síðu, síðari tíma viðbót.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 154-160 mm x 130-135 mm.
  • Línufjöldi er 18-22.
  • Leturflötur afmarkaður með þurroddi.

Ástand

  • Blöð stökk og gulnuð.
  • Blettir, en skerðir ekki texta, bl. 23v, 37r og 37v.
  • Texti sést allstaðar í gegn, sjá 1v og 2r.

Skrifarar og skrift

Með hendi Gunnars Pálssonar, snarhönd (latína) og fljótaskrift.

Skreytingar

Fyrirsagnir ritaðar með frábrugnu letri, bl. 6r, 13v, 20r, 23r, 24r, 30r, 32v og 35r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Spássíugreinar, tilvísanir í aðrar heimildir, athugasemdir og leiðréttinar, bl. 3r, 7v, 11v, 14v og 28v.
  • Á fremra spjaldi stendur skrifað með blýanti: Ny. kgl. Saml. No. 1851 a

Band

Óvíst um uppruna bandsins (196 mm x 157 mm x 9 mm).

Bókaspjald úr pappa með grænu flæðimynstri. Límmiði á fremra spjaldi með stimpli og: Gunn - Pauli f. | de typographia Islando- | ium; 1754.

Handritið er í nýlegri öskju (200 mm x 163 mm x 16 mm).

Límmiði framan á öskju með merki Árnastofnunar.

Fylgigögn

Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: Håndskr. Afd. | Ny kgl. | Saml. | 1851 a,|

Uppruni og ferill

Uppruni

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1986.

Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

MJG skráði handritið samkvæmt TEI P5 2. október 2023 ; bætti við skráningu 15. janúar 2024.

Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 246.

Viðgerðarsaga
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn