Testamentum Novum. Það er Nýja Testamentum á norrænu með formálum D. Lutheri. Matth. 17. Þessi er hinn elskulegur sonur að hverjum mér vel þóknast. Ljónum skulu þér hlýða. Anno Dom. M DC LXXX VIII. (Bl. 2r). (Neðst til vinstri er fangamarkið: „E.O.S.“)
„Formáli yfir hið nýja test[a]mentum“
„Eins líka svo sem fyrir Nýja testamentið kallast ein bók ...“
„... sem lesa má í píningar historiunne.“
„Hanc versionem Novi Testamenti Domini Nostri Jesu Christi secundum autographum Nomophytacis Gotskalki, qui iltad omnium primus in linqvam Islandican transtalit, exscripsit Anno Christi MD CL XXX VIII. Oddur Einarsson. MEH. (Bl. 288r).“
Anno Domini Iesu Christi. M DC LXXX IIX. Soli. Deo. Gloria. FINIS.
Á bl. 2v er efnisyfirlit: „Bækur hins Nýja testamentis.“. Nýja testamentið í þýðingu Odds Gottskálkssonar sem Oddur Einarsson hefur skrifað upp árið 1688.
„Evangelium s: Iohannis I“
Á bl. 286r-287v eru samhliða dálkar með upphafi Jóhannearguðspjalls í grískum, latneskum og þýskum texta, auk 10 boðorða í latneskum og grískum texta.
Blaðmerking með blýanti á efri rektósíðu 1-288, seinni tíma viðbót.
Ein hönd, Oddur Einarsson, léttiskrift og kansellíbrotaskrift í fyrirsögnum.
Skeytt titilsíða.
Skrautbekkur umhverfis titilsíðu.
Stórir og íburðarmiklir upphafstafir (bl. 5r, 40r, 63r, 177r, 191v, 198r, 205r, 210r, 223r, 256r, 156r, 259r, 264r).
Stórir upphafstafir í upphafi hvers kafla.
Ígildi bókahnúta (bl. 4v, 63r, 96v, 176r, 190v).
Band frá því um 1688 (228 mm x 164 mm x 60 mm).
Skinnband, tréspjöld klædd blindþrykktu brúnu skinni með spennslum. Upphleyptur kjölur. Horn og miðjusköldur úr málmi (látúni).Skinnband, spennslur, miðjuskjöldur og horn virðast koma úr sitthvorri áttinni.
Á versósíðu aftasta saurblaðs er sami texti og á bl. 49v, rektósíða saurblaðsins er auð.
Handritið er í blágrænni öskju (252 mm x 193 mm x 88 mm). Kjölur úr ljósbrúnu skinni, safnmark þrykkt á með gyllingu.
Ísland.
Skrifað árið 1688, sjá titilsíðu (bl. 2r) og bl. 285v.
Þórdís Þórðardóttir hefur átt handritið: „Þessa bók á ég undirskrifuð Þórdís Þórðardóttir“ (bl. 1r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1986.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum, 18. desember 2023 ; lagfærði eftir yfirlestur ÞS 10. apríl 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 164-165.