„Anno 1693 þann 13. febrúar um kvöldið þá klukkan hefur verið milli sjö og átta bar til sá skelfilegi atburður og ...“
„... til sáust fyrr en hér upphaflega greinir.“
Tvær frásagnir frá Heklugosinu 1693, sr. Daða Halldórssonar prests og lögréttumannsins Magnúsar Gíslasonar.
„Aaret 1693 den 13 februar om aftenen mellem kl. 7 og 8 ...“
„... i begyndelse her af er annaledt).“
Dönsk þýðing á fyrri hluta.
Blaðmerking 1-8 með blýanti á neðri spássíu.
Tvö kver.
Bl. 1r-2r: Sr. Daði Halldórsson, fljótaskrift.
Bl. 3r-8r: Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Óvíst um uppruna bandsins (316 mm x 210 mm x 30 mm)
Bókaspjöld úr pappa klædd áþrykktum pappír.
Handritið er í öskju.
Límmiði á fremra spjaldi sem á stendur: „Om Heklafjeldets | Udbrud 1693. Isl. med en nyrre | dansk Oversættelse. | Ny kgl. S. 4°(!) 1094c.“Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: „Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 1094c 2° | Om Heklafjeldets | Udbrud 1693. | 1 bind.“
Handritið var skrifað á Íslandi.
Fyrri hluti handritsins er tímasett ca 1700 en seinni hlutinn ca 1800 í Katalog Kålunds, nr. 248
Sigurður Þórarinsson segir í bók sinni Heklueldar (1968), bls. 84, að sr. Daði Halldórsson hafi skrifað skýrsluna um miðjan maí 1693.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. ágúst 1986.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði handritið samkvæmt TEI P5 reglum, 14. september 2023 ; uppfærði skráningu 18. október 2023 ; lagfærði eftir yfirlestur ÞS 9. janúar 2024 og 9. apríl 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 109.