„Agnars konungs ævi Hróarssonar; í ljóð sett af sáluga Árna Böðvarssyni og útgefið eftir hans eign handriti. Prentuð í Hrappsey í því nýja konúnglega bókþrykkeri af Guðmundi Ólafssyni 1777“
„Agnars sögu upphafs von / álítum með gleði …“
„… græði bæði gleði með / góða bjóði stunda.“
„Rímnasafn hér framanskrifað tilheyrir ekkjunni Madame Helgu Guðmundsdóttur á Ormsstöðum, og hefur undirskrifaður ritað þær fyrir hana. Páll Friðriksson.“
Uppskrift eftir bók útgefinni í Hrappsey 1777.
„Rímur af Sigurði snarfara. Kveðnar af síra Snorra Björnssyni presti fyrst á Stað í Aðalvík og síðan á Húsafelli. Þrykktar á Hrappsey af G. Ólafssyni 1779.“
„Einn ágæltur hilmir hét / Hjaldur trausti fyrr á tíð …“
„… yðar gætir sjálfur senn / sá er skapti heima.“
„Rímur af Hrólfi Kraka eru 11efu fyrstu kveðnar af síra Eiríki Hallssyni en hinar 8ta af Þorvaldi Rögnvaldssyni. Prentaðar í Hrappsey í því nýja konúnglega privilegeraða bókþrykkerí af G. Ólafssyni 1777.“
„Hófleg skemmtan hrindir þögn / hratt sem myrkir birta …“
„… með því fel ég menn og sprund / mildri drottins hendi.“
Pappír.
Innbundið.
Skinnband.
Hulda Björk Þorkelsdóttir bókavörður bókasafns Reykjanesbæjar sendi 28. febrúar 2005 kassa með handritum úr safninu áður Bæjar- og Héraðsbókasafnið í Keflavík. Samskiptin voru að tilhlutan Þórunnar Sigurðardóttur en handritin áttu ekki lengur neitt hlutverk í safninu. Í handritin hefur verið stimplað Bæjar- og héraðsbókasafnið Keflavík auk aðfangaárs sem er 1990 jafnframt hefur verið er skrifað inn aðfanganúmer á titlsíðu. Handritin eru öll innbundin, kjalmerkt og á þau hefur verið settur strikamiði.
Nöfn í handriti: Helga Guðmundsdóttir og Axel B. Magnúsen.
Sjá Lbs 5632-5635 4to og Lbs 4938-4949 8vo.
Sett á safnmark í september 2015.
24. ágúst 2015 voru handritin sett til forvarðar til þess að fjarlægja kjalmiða og lím.