„Rímur af Ásmundi víkingi ortar af Eyjólfi Jóhannessyni á Sveinatungu“
„Málsgrein forn af mönnum rædd / meining held ég svari …“
Tólf rímur.
„Ísland fagnar konungi sínum á Þingvelli árið 1874, ort af Hjálmari Jónssyni á Bólu“
„Velkominn sértu sjóli vor, / sæll og blessaður, faðir góður …“
„Raupsaldur, kveðið til gamans í elli sinni af Hjálmari Jónssyni á Bólu“
„Endurskarar ellin grá / ævidaga suma …“
„Lýsing á stroknum manni eftir Hjálmar Jónsson á Bólu um hann sjálfan“
„Frétt sú berst um Fjölnis kver / fyrir nokkrum dögum …“
„Orðið Skeið eftir þann sama“
„Skeið er brúkuð skarpan vef að banga, / skeið er ævitíðin stutta og langa …“
„Rímur af Jasoni bjarta“
„Fyrst skal Herjans horna lá, / heldur dauft þó blandi …“
Átta rímur.
„Rímur af Sigurði geisla“
„Vísu eina vildi ég smíða, / vænt því efnið fann …“
Fimm rímur.
„Ævintýrið Jóhönnu rímur, kveðnar af séra Snorra Bjarnarsyni presti að Húsafelli“
„Til bar þetta tíma þann, / tjáir letrið skýra …“
Átta rímur.
„Ríma af Þorsteini Austfirðing, ort af séra Snorra, Húsafelli“
„Á Austfjörðum ísa granda / ólst upp maður …“
„Endað að skrifa 21. október 1899 af Ólafi Bjarnasyni í Steinum, sem á þessa bók með réttu (165v).“
„Bárðarríma, kveðin af séra Jóni Hjaltalín á Breiðabólstað á Skógarströn“
„Víða flýgur Vignis sprund / valur Gauta yfir …“
Ríman er í handritinu eignuð séra Jóni Hjaltalín.
„Kolgerðarríma ort af séra Jóni Hjaltalín á Breiðabólstað á Skógarströnd“
„Elsku bróðir, auðnan há / að þér jafnan streymi …“
35 erindi.
„Glæsirserfi ort af Hjálmari Jónssyni á Bólu“
„Óðinn gramur Ása reið / auðnu samur heiman …“
30 erindi.
„Rímur af Ármann og Grámann, kveðnar af Magnúsi sál. Jónssyni í Skógum“
„Þegar Dumbur, þengill frí, / þjóðum stýra mátti …“
„Endað að skrifa 15. mars 1903, Ó.B. (255r)“
12 rímur.
„Ljóðabréf, ort fyrir Ingigerði Bjarnadóttir á Einifelli“
„Endað að skrifa 20. mars 1903 af Ólafi Bjarnasyni í Steinum sem á þessa bók með réttu (255r).“
„Rímur af Knúti heimska, kveðnar af Jóni Guðmundssyni á Tungukoti 1867“
„Nú skal hrinda fýlu frá, / í fjarlægða mannsæri …“
10 rímur.
„Norðurferðavísur“
„Fór ég norður og flýtti mér / fýsti ei hér að dvelja …“
„Hermannavísur“
Pappír.
Lbs 2250-2251 8vo, keypt 1926-1927 af Bergsteinu Bergsteinsdóttur í Hafnarfirði.