Eiginhandarrit Daða að mestu. Alls sjö bindi, meðal efnis er ævisögubrot, annálar, mannalát, kongsbréf, fornskjöl, prestakallaveitingar, ættartölubrot, prestaævir, kvæði, rímur og fleira.
Pappír.
Lbs 961-1234 8vo er keypt 1904 af Jóni Þorkelssyni þjóðskjalaverði. Lbs 961-968 8vo eru til hans komin frá síra Arnljóti Ólafssyni en voru áður í eigu Geirs Vigfússonar.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 184.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 27. október 2020.