Skráningarfærsla handrits

Lbs 138 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1800

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Excerpta Steingríms biskups
Athugasemd

Ýmislegs efnis, varðandi heimspeki, náttúru- og eðlisfræði, trúar- og siðfræði, búnað, landa-, þjóða- og sagnfræði, úr Büschings Geographie, kirkjusögu Finns biskups, Badens Grammatik, J. A. Dathes latínsku þýðingu á Davíðssálmum o.fl.

2
Guðspjallaþýðingar
Athugasemd

Þýðingar og skýringar á dönsku á ýmsum guðspjallanna og Postulanna gerningabók.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
20 + 586 blaðsíður (170 mm x 108 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; skrifari:

Steingrímur Jónsson

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Efnisyfirlit á saurblaði fremst með hendi Páls Pálssonar stúdents.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, um 1800.
Ferill

Lbs 138-139 8vo, úr safni Steingríms Jónssonar biskups.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 9. september 2020.

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 32.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn