Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 89 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1700-1799

Innihald

Titill í handriti

Æfisaga þess gáfuríka og guðhrædda kennimanns sál. sr. Hallgríms Péturssonar, samantekin eftir bón biskupsins hr. Finns Jónssonar af sr. Vigfúsa Jónssyni prófasti í Mýrarsýslu og presti að Hítardal. Skrifuð anno MDCCLXXII.

Athugasemd

Með hendi Hallgríms Jónssonar djákna (fyrir 1800).

Efnisorð
Titill í handriti

Lífs- eður æfisaga Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups

Efnisorð
Titill í handriti

Æfisaga Eggerts Ólafssonar (vice) lögmanns sunnan og austan á Íslandi

Athugasemd

Rituð eftir hinni prentuðu útgáfu (Hrappsey, 1784).

Hér er einnig Brúðkaupssiðir í brúðkaupi Eggerts, lýsing séra Björns Halldórssonar í bréfi til Jóns Ólafssonar vicelögmanns.

Efnisorð
4 (78r-87v)
Reisubók séra Ólafs Egilssonar
Titill í handriti

Frásaga Ólafs prests Egilssonar um atfarir Tyrkjans í Vestmannaeyjum árið 1627 (brot).

5 (89r-133v)
Fjölmóður
Titill í handriti

Æfidrápa Jóns Guðmundssonar lærða

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
ii + 133 + i blöð (165 mm x 100 mm).
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur ; skrifarar:

Hallgrímur Jónsson

Óþekktir skrifarar

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, á 18. öld.
Ferill

Lbs 88-90 8vo, úr safni Hannesar Finnssonar biskups.

Páll Pálsson stúdent hefur safnað ritgerðum þessum saman, hverri úr sínum stað, og eru þó sumar úr söfnum þeirra Hannesar og Steingríms biskupa.

Aðföng

Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar var keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir jók við skráningu 15. apríl 2020 ;Bragi Þorgrímur Ólafsson frumskráði fyrir myndvinnslu, 27. október 2009 ; Handritaskrá, 2. bindi, bls. 21-22.
Lýsigögn
×

Lýsigögn