Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 2150 4to

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum ; Ísland, 1739

Titilsíða

Ein góð kvæðabók hafandi inni að halda mörg ágæt, nytsamleg og lærdómsrík andleg kvæði og heilaga söngva. Sem ort og samsett hefur sá æruverðugi Guðhræddi og gáfuríki Drottins kennimann Sr. Ólafur Guðmundsson forðum sóknarherra að Söndum í Dýrafirði sællar minningar. Skrifuð að Hálsi við Hamarsfjörð. Anno 1739. (1r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 163 + i blöð (190 mm x 150 mm).
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 1-216 (1r-109v). Er víða skorið af henni.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 163 mm x 134 mm.
  • Línufjöldi er 22-25.
  • Griporð á stöku stað.

Skrifarar og skrift
Skreytingar

Einfaldir upphafsstafir víða.

Bókanhútar sjá : 1r.

Skreyting á neðanverðri síðu víða sjá: 3r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Á fremra og aftara saurblaði er að finna ýmis mannanöfn.
  • Á u.þ.b. fjórða hverju blaði er að finna bókstafi frá A-Qq, sjá: 5r.
Band

Band frá árunum 1739-1840 (199 mm x 154 mm x 43 mm).

Skinnband með tréspjöldum.

Límmiði á fremra spjaldi.

Snið flekkótt.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1739.
Ferill

Á fremra saurblaði stendur : Gunnlaugsstöðum anno 184[?] Hans Jakobsson á Gunnlaugsstöðum í sk[?] í Suður Múlasýslu, Hans Jakobssonog Hans á bókina.

Einnig stendur: Sigmundur M. Long 1890.

Einnig stendur: Sigfús Sveinsson á þess bók með réttu.

Einnig stendur: Sigmundur Mattíasson á bókina 1880.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði 15. febrúar 2012 ; Handritaskrá, 1. b.
Lýsigögn
×

Lýsigögn