Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 779 4to

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum ; Ísland, 1712

Titilsíða

Ein lítil syrpa eður vísnasamdráttur þeirra kvæðis erinda sem á næstumliðnu tuttugu ára tíma, hafa til andlegarar skemmtunar og skamdægurs við og við af munni fallið. Nú uppteiknuð þeim til gagns og góða sem þau vilja yðka, og fyrir munni sér kveða. Ork og samesett af þeim heiðurlega, guðhrædda og andríka kennimanni sáluga séra Ólafi Jónssyni, forðum sóknarpresti að Söndum við Dýrafjörð (1r). Annar partur þessarar vísnabókar sáluga séra Ólafs Jónssonar. Innihaldandi mörg ágæt huggunarkvæði með öðrum fleirum kveðlingum sem og einning rímur af niðurbroti borgarinnar Jerúsalem (98r).

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 186 + ii (181 mm x 142 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking II-IX (4r-11r) og 1-170 (12r-182r).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 150-153 mm x 109-115 mm.
  • Línufjöldi er 25-28.
  • Griporð á versósíðum.

Ástand

Blöð 63 og 148 skemmd.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Skreytingar

Skreyttar titilsíður á blöðum 1r og 98r.

Víða flúraðir upphafsstafir, sjá blöð: 22v, 35v, 85r, 88r, 92r, 99r, 108v og 169v.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Á blaði 54v stendur: Ég bið yður að hlífa mér.
  • Á blaði 97v stendur: Ólöf Jónsdóttir á þessa bók.
Band

Band frá árunum 1908-1942 (189 mm x 154 mm x 35 mm).

Bókaspjöld úr pappa klædd svörtum hömruðum pappír. Kjölur og horn klædd brúnu skinni.

Límmiði á kili.

Runólfur Guðjónsson batt.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1712.
Ferill

Ólöf Jónsdóttir átti handritið (97v).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði 12. desember 2011 ; Handritaskrá, 1. b.
Lýsigögn
×

Lýsigögn