„Sendibréf til hr: NN. Skrifað eftir hans eigin beiðni“
Það er ritgerð um aukatekjur presta eftir Finn biskup Jónsson, send Magnúsi amtmanni Gíslasyni, dagsett 14. júní 1765. Eftirrit með samtímis hendi.
„Ofann og framanskrifað hefur lögmaður SSS Samanntekið“
Með hendi Finns Jónssonar.
„Um kúgildi á jörðum. Historia kúgildanna er soleiðis:“
Með hendi Finns Jónssonar
„Anonymi cujusdam de hundrad sylfurs qvæstiones qvædam propositæ“
Til logm. Sv. Sol.S. 1756.
Eftir síra Vigfús Jónsson og með hans hendi.
„Lítið ágrip um riddara og þeirra ordur“
Til logm. Sv. Sol.S. 1757.
Með hendi Vigfúsar Jónssonar
„Dubium cujusdam anonymi 1757“
1757 LM: SSS.
Með hendi Vigfúsar Jónssonar.
„Lítilfjörlegt andsvar eftir tilmælum uppá þetta Dubium þénustusamlega til velvirðingar framfært“
Til lögm. Sv.S.S. 1758.
Með hendi Vigfúsar Jónssonar
„Stutt undirrétting um tíundir af dómkirknanna, klaustranna og annarra kirkna jörðum. Til biskups sál ÓGS.“
Með hendi Vigfúsar Jónssonar.
„Um framandi kauphöndlan í Íslandi“
„Fornjótur skyggnandist um þá réttu lausafjár- og fasteigna-matningu, til Sals, Tíundar og leigu eftir samburði hins forna og nýa verðlags, á samt nokkru um jarða-kúgildi til eftirþanka öðrum betur þenkjandi á I.I.S.Landi. Samið 1799.“
Eftir síra Jón Jónsson í Núpufelli og með hans hendi. Þar með fylgir bréf sama til Stefáns amtmanns Þórarinssonar, 10. desember 1810 um mat á Núpufelli.
Pappír.
Fremst er yngra titilblað og efnisyfirlit.
Ísland, á síðari hluta 18. aldar og um 1800.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 16. janúar 2020 ;
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi , bls. 149-150.