Skráningarfærsla handrits

Lbs 106 4to

Máldagar, registur og fleira ; Ísland, 1700-1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Máldagabækur Hóladómkirkju
Titill í handriti

Excerpta úr gömlum máldagabókum Hóladómkirkju coperuðum 1639

Athugasemd

Það er frá dögum Auðunar biskups 1318, Jóns biskups skalla 1360, Péturs biskups 1394 og Ólafs biskups Rögnvaldssonar 1461.

Skrifað um 1830. Tvær hendur, önnur Steingríms biskups.

Efnisorð
2
Auðunarmáldagi
Athugasemd

Afskrift af nokkrum máldögum Auðunar biskups.

Með hendi eins skrifara Steingríms biskups.

Efnisorð
3
Athugasemdir um Auðunarmáldaga
Athugasemd

Krítískar athugasemdir um máldaga þá sem kenndir eru við Auðunn biskup

Með hendi síra Vigfúsar Jónssonar. Skrifað á sendibréf frá Hannesi Finnssyni, dagsett í Skálholti 15. ágúst 1767.

Efnisorð
4
Registur yfir presta í Hólabiskupsdæmi
Athugasemd

Samkvæmt ævisögum presta í Hólastifti og handritum Hannesar biskups; Lbs 57 4to, Lbs 60 4to og Lbs 67 4to.

Með hendi Steingríms biskups.

Efnisorð
5
Hjón, greind í handriti Hannesar biskups, Lbs 60 4to.
Athugasemd

Tímabilið 1324-1520.

Með hendi Steingríms biskups.

Efnisorð
6
Leikmenn í fornum máldögum.
Athugasemd

Registur yfir leikmenn, nefnda í máldögum biskupanna, Auðunar, Jóns skalla og Ólafs.

Með hendi Steingríms biskups.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
vii + 98 blöð (210 mm x 172 mm).
Skrifarar og skrift
Fjórar hendur; þekktir skrifarar:

Steingrímur Jónsson

Vigfús Jónsson

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Fremst er yngra titilblað með efnisyfirliti.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ísland, 18. og 19. öld.

Aðföng

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 13. janúar 2020 ;

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 1. bindi , bls. 146-7.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn