Seinni tíma blaðsíðumerking 1-334.
Band frá ca. 1850-1950 (138 mm x 78 mm x 35 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd áþrykktum pappír með léreftskili og -hornum.Snið blálit.
Tveir límmiðar á kili.
Handrit hefur verið skorið til þegar það var innbundið og víða vantar texta þess vegna.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.