Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 207 8vo

Sálmar, kvæði og bænir fáeinar ; Ísland, 1720

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðfjöldi
235 blöð (152 mm x 96 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu ; Óþekktur skrifari.

Pétur Jónsson , fjögur öftustu blöð með hans hönd.

Band

Skinnband.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1720
Ferill

Eigandi handritsins er 1747 Sigríður Gunnlaugsdóttir (samanber blað 183), systir Ólafs í Svefneyjum ; gæti handritið verið með hönd manns hennar, séra Sigurðar Þórðarsonar á Brjánslæk.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Guðný Hrafnkelsdóttir frumskráði, 2. júlí 2010 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2010.

Notaskrá

Höfundur: Páll Eggert Ólason
Titill: Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi
Lýsigögn
×

Lýsigögn