Skráningarfærsla handrits

JS 636 4to

Sögubók ; Ísland, 1600-1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r - 24v)
Lykla-Péturs saga og Magelónu fögru
Titill í handriti

Ein lystileg historia af þeirri fögru Magelóna kóngsdóttur af Neapolis og einum riddara sem Pétur hét. Úr frönsku útlögð á þjóðversku og síðan á íslensku.

Efnisorð
2 (25r - 43r)
Flóres saga og Blankiflúr
Titill í handriti

Sagan af Flóres og Blantzeflúr

Efnisorð
3 (44r - 49v)
Sigurðar saga fóts
Titill í handriti

Sagan af Sigurði fót og Ásmunde

Efnisorð
4 (49v - 53v)
Valtara saga hertoga
Titill í handriti

Ævintýr af einum hertoga er kallast Valltare

Efnisorð
5 (53v - 67r)
Esópus saga
Titill í handriti

Eitt æfintýr af Esopo

Efnisorð
6 (67r - 84v)
Haralds saga Hringsbana
Titill í handriti

Sagan af Haraldi hringbana

7 (85r - 102v)
Clarus saga
Titill í handriti

Saga af Clarusi keisara syni

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
i + 102 blöð + i (187 mm x 156 mm).
Tölusetning blaða

Ný blaðmerking 1-102.

Skrifarar og skrift
Ein hönd ;

Óþekktur skrifari

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Fremst er efnisyfirlit með hendi Páls Pálssonar stúdents.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 17. - 19. öld

13. bindi úr 19 binda sagnasafni: JS 623 4to - JS 641 4to.

Ferill

Úr safni Jóns Árnasonar bókavarðar.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Jón Árnason bókavörður, seldi.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 613-615.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 20. september 2019.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn