Ljóða Smámunir eftir Sigurð Breiðfjörð 4. bindi. Nokkuð áður prentað í minni og stærri Smámunum og Smákveðlingum 1862 en flest óprentað safnað af ýmsum og JBorgfirðingi.
„Þeim sem hafa aldrei átt…“
87 erindi.
Við rímuna er glósað: „kveðin 1820, prentað 1862. Safnað af Þorsteini Gíslasyni á Stokkahlöðum. Hans handrit eigin.“
„Ráðhildarríma eða Forsjála píkan ort af Gísla Konráðssyni“
„Vildi ég semja lítil ljóð…“
87 erindi.
Hér liggja inn á milli laus blöð.
Á blaðsíður 208 stendur: „Eftirfylgjandi Smákvæði og stökur eftir Breiðfjörð safnað af J. Borgfjörð.“
Pappír.
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 192.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 11. september 2018.