„Vindólfs snekkjan vill á skrið …“
3 rímur
Fremst liggur blað með upplýsingum um rímuna og uppskrift hennar, þar stendur meðal annars: „Eylands rímur. Skrifað hér eftir lausum blöðum með hönd Andrésar Hákonarsonar, og er þær sagðar ortar af Guðmundi Bergþórssyni sem mun vera rangt. Það mun vera þær sömu … Eylandsrímur eða rímurnar af Jóris Pines … eftir Pál Bjarnason … “.
Pappír.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 187-188.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 27. ágúst 2018.