„Ein nytsamleg bænabók. Sem lesast má á sérhverjum degi vikunnar kvöld og morgna, ásamt öðrum aðskiljanlegum tímum. Samanskrifuð af M. Johanni Lassenio enn á íslensku útlögð af séra Þorsteini Gunnarssyni kirkjuprest á Hólum Anno 1681.“
Þýðandi : Þorsteinn Gunnarsson
Í handritaskrá stendur: „þar með og sálmar; nafngreindir höfundar síra Hallgrímur Pétursson, (Ásmundur Sæmundsson)“.
Pappír.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 180.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 31. maí 2018.