„Ein andleg viku harpa. Tilbúinn af blessuðu bænaefni. M. Joh. Lassenii. Samsett eftir vors landsvísu af andagtugu orðfæri Sal. Sra Þorsteins Gunnarssonar. Stillt uppá eftirfylgjandi 14 vikutals strengi kvöld og morgna, af Benedict Magnússyni Beck“
Fyrsta kvæðið er tileinkað Margréti Einarsdóttur.
„Annar partur þessa bæklings innihaldandi Guðrækilega sálma sem brúkast kunna á ýmsum tímum af andríkum aðskiljanlegum skáldum gjörða; enn samanskrifaða á Hólum árið M.DCCLXIX“
Pappír.
Litskreytt heilsíðumynd.
Skinnband. Fallegt þrykkt band og þrykktur jaðar.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 166.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 15. desember 2017.