Almanak um ár eftir Krists fæðing 1863 sem er þriðja ár eftir hlaupár og eftir sumarauka reiknað eftir afstöðu Reykjavíkur á Íslandi af H.C.F.G. Schjellerup observator en útlagt og lagað eftir íslensku tímatali af Jóni Sigurðssyni Dagbók 28. ár.
Pappír.
Í umslagi fremst í VI bindi eru miðar með athugasemdum varðandi dagbækur Sveins ásamt þremur rifrildum.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 152.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 19. júní 2017.