„Anno 1703, þann annan Nóvembris, fór svofelld skikkun fram um þá hesta sem leyfislausir hafa hér verið á næstkomandi ári fyrst með húsum einn ofur þar undir gjaldist …“
Afrit af bréfi um þá skikkun að þeir sem eiga leyfislausa hesta skuli gjalda 24 fiska, helmingur til umboðsmannsins Christoffer Jensen og helmingur til fátækra. Skikkunin fór fram 2. nóvember 1703. Þórður Þórðarson og Sigurður Sölmundsson votta að rétt sé eftir frumbréfi skrifað, dags. 7. júní 1704.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1703 til 1704.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus seðill með hendi Árna Magnússonar: „Þeir sem höfðu hálfan auka hest til forna á Vestmannaeyjum gáfu til fátækra eyris virði, eða þar um. Auka hesta heila höfðu fáir. Nú hefur sýslumaður uppá lagt að gefast skuli 24 fiskar, NB mutatam schedulam“