„Aðrikstur og upptök um vogir á Vestmannaeyjum. Hvörju so er varið að eftir því að virðuglegur umboðsmaðurinn Christofor Jenzson hefur fornumið af haustmönnum …“
Afrit af bréfi þar sem sagt er frá deilum um þyngd fisks sem gerðu það að verkum að allar vigtir í Vestmannaeyjum voru bornar saman við kóngsins vigt. Þeim sem skiluðu réttri þyngd var skilað en hinar brotnar. Bréfið er dagsett 6. desember 1702 og undirritað af sex mönnum. Á eftir fylgir uppskrift af bréfi Sigurðar Björnssonar, dags. 20. júlí 1703. Diðrik Jürgen Brandt og Þórður Þórðarson votta að rétt sé eftir frumbréfum skrifað, dags. 6. júní 1704.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1703 til 1704.
Mótmerki 2: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXVI-K6_1-wm1). Stærð: 20 x 15 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 21 mm.
Notað frá 1703 til 1704.
I (1r-2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
II (2r): Óþekktur skrifari (hugsanlega Þórður Þórðarson), fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus seðill, að hluta til með hendi Árna Magnússonar þar sem gefnar eru frekari upplýsingar um vigtarbrotamálið.