„Anno 1686 þann 21. maí að settu manntalsþingi að Heggstöðum í Andakíl af valdsmanninum Jón Sigurðssyni, lét hann auglýsa þá skriflega …“
Afrit af vitnisburðarbréfi nokkurra manna um að Klausturtunga teljist til Grjóteyrar og sé því með réttu eign Eyjólfs Jónssonar, dags. 21. maí 1686. Jón Sigurðsson og Sigurður votta að rétt sé eftir frumbréfi skrifað, dags. 29. október 1705. Það gera einnig Þorsteinn Ketilsson og Hálfdan Helgason, dags. 22. júní 1707.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1705 til 1707.
Sjá líka IS5000-DIF-LXXVI-I2.
Notað frá 1705 til 1707.
I (1r-2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
II (2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Laus seðill með hendi Árna Magnússonar, með blýanti merktur „AM-seddel“, þar sem er ritað: „Best væri að kóngur seldi Grjóteyrar eigendum Klausturtungu.“ Aftan á seðlinum er texti sem hefur að hluta verið skorinn af og strikað yfir.