„Vi underskrefne Sal. Rigs Admiral Herre Hendrich Bielkes arfvinger …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 25. mars 1688, þar sem erfingjar Henriks Bielke selja Christoffer Heideman ýmsar jarðir. Á eftir bréfinu fer vitnisburður á íslensku um að það hafi verið lesið upp í Lögréttu 3. júlí 1688. Undir hann hafa upprunalega skrifað: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson. Að rétt sé eftirskrifað votta Ólafur Pétursson og Þorkell Jónsson, dags. 6. júlí 1693
„Daa som jeg efter forskrefne adkombstz og skiödes indhold …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 7. júlí 1693 þar sem Christoffer Heideman selur Einari Þorsteinssyni jörðina Axlastaði. Vitnisburður á íslensku um að bréfið hafi verið lesið upp í Lögréttu 7. júlí 1694. Árni Geirsson undirritar. Vitnisburður á íslensku frá 30. maí 1703 um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi. Undir skrifar Páll Jónsson auk annars manns. Á 2v stendur: Kópía. Kaupbréf fyrir Axlastaði, 20 hundruð að dýrleika, daterað 1693 þann 7. júlí. Bjarna Einarssonar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXV-53-wm1). Stærð: 12 x 25 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 51 mm. Notað frá 1688 til 1703.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.