„Vi underskrefne Sal. Rigs Admiral Herre Hendrich Bielkes arfvinger …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 15. mars 1688, þar sem erfingjar Henriks Bielke selja Christoffer Heidemann ýmsar jarðir. Á eftir bréfinu fer vitnisburður á íslensku um að það hafi verið lesið upp í Lögréttu 3. júlí 1688. Undir hann hafa upprunalega skrifað: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson. Þar á eftir er ódagsettur vitnisburður á dönsku sem Runólfur Þórðarson og Gísli Illugason hafa undirritað. Sama bréf er afritað á bl. 3r-7r. Íslenski vitnisburðurinn fylgir á 7v. Á 7v-8r er vitnisburður á dönsku, dagsettur 5. júlí 1694, undirritaður af L. C. Gottrup.
„Jeg Christoffer Heideman Kongl. Majst Assessor udi Commercii Collegio …“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 28. júní 1690 þar sem Christoffer Heidemann selur Vilhjálmi Jónssyni og Þorkeli Jónssyni jarðirnar Ingveldarstaði og Daðastaði. Vitnisburður á íslensku um að bréfið hafi verið lesið upp í Lögréttu 5. júlí 1690. Undirritað af Árna Geirssyni. Vitnisburður á íslensku 14. júní 1703 um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi. Undir skrifa Gísli Ólafsson og Halldór Ólafsson. Vitnisburður um landskuld, dags. 12. júlí 1703, undirritað af Vilhjálmi Jónssyni m.e.h. og Þorkeli Jónssyni m.e.h.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað frá 1688 til 1703.
Með hendi Árna Geirssonar alþingisskrifara, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.