Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,43

Bréf

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

(1r-v)
Bréf
Upphaf

Hans kongelige majestets til Danmark og Norge geheimeråd og rigsadmiral, præsident udi admiralitets collegio …

Athugasemd

Afrit af opnu bréfi Henriks Bjelke frá 28. júní 1679. Um sölu hans á Litla-Kálfalæk.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: skjaldarmerki Amsterdam (IS5000-DIF-LXXV-43). Stærð: 100 x 110 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 119 mm.

    Notað í 1682.

Blaðfjöldi
1 blað (320 mm x 210 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 292 mm x 175 mm.
  • Línufjöldi er 40.

Ástand
Blaðið hefur verið brotið saman.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Aftan við bréfið segir að það hafi verið afritað á Hvítárvöllum 10. mars 1682. Undir rétta afskrift Hannes Björnsson, Guðmundur Sigurðsson og Björn Þórarinsson.
  • Þar fyrir neðan segir: Að þetta bréf hér fyrir framan skrifað, sé rétt kópí kópía votta niðurskrifaðir við Öxará 9. júlí 1704. Þorbjörn Jónsson m.e.h. Björn Jónsson m.e.h.
  • Efst á 1r er safnmark með svörtu bleki og 1676-2 með blýanti.
Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi 1682.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 7. mars 2017. ÞÓS skráði 23. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 12. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Bréf

Lýsigögn