Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,16

Bréf Ögmundar biskups ; Íslandi

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-2r)
Bréf Ögmundar biskups
Titill í handriti

Bréf Ögmundar biskups Pálssonar

Upphaf

Vér Ögmundur með Guðs náð, biskup í Skálholti, kunngjörum öllum mönnum með þessu voru opnu bréfi, að oss angrar mjög þær stóru lögleysur og miklar óhæfur, sem aukast fram úr öllum máta í þessu fátæka landi …

Athugasemd

Uppskrift af bréfi Ögmundar biskups Pálssonar til alþýðu manna í Skálholtsbiskupsdæmi gegn ýmsum óhæfum, svo sem hórdómum, manndrápum og að láta börn deyja úr hor og gegn öðrum stórsyndum. Dagsetningu vantar í uppskriftina en aðrar uppskriftir hafa 3. febrúar 1540.

Skjalið er prentað í Íslenzku fornbréfasafniX, nr. 226, bls. 507-509.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXV-16). Stærð: 13 x 23 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 23 mm.

    Notað frá 1680 til 1730.

Blaðfjöldi
Tvíblöðungur (200 mm x 159 mm). Bl. 2v er autt.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins C. 1530.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi ca. 1680-1730.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu á árinu 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 21. ágúst 2018. ÞÓS skráði 20. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 12. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,16
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn