„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Árni Snæbjarnarson ráðsmaður heil. Skálholtskirkju, Ólafur Oddsson, Rafn Oddsson kirkjuprestur …“
Afrit af bréfi rituðu árið 1481 sem aftur er afrit af bréfi sem ritað var árið 1439. Það bréf er síðan afrit af frumbréfinu sem ritað var 17. júní 1368 og er vitnisburður séra Snorra Þorleifssonar, séra Flosa Jónssonar og séra Þorláks Narfasonar um biskupsgistingar á hálfkirkjum. Skjalið er prentað (eftir annarri uppskrift) í Íslenzku fornbréfasafniIII, br. 198, bls. 247-248.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r. Einnig er ritað safnmarkið MSteph. 78 Fol. p. 244-246 þar sem uppskrift sama bréfs má finna. Þá eru einnig rituð ártölin 1368, 1439 og 1481 með blýanti á ytri spássíu.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.