„Anno 1654, þann 21. dag októbris að Holti í Önundarfirði, vorum vér eftirskrifaðir menn, Gísli Jónsson, Sæmundur Eggertsson og Jörundur Pétursson, til vitnis kallaðir að heyra á orð og sjá upp á handsöl þessara manna …“
Bjarni Jónsson selur Magnúsi Magnússyni jörðina Haukaberg á Barðaströnd og á móti selur Magnús Bjarna jörðina Minna-Lambadal í Dýrafirði, dags. 21. október 1654. Utanáskrift á 2v: Kaupbréf Magnúsar Magnússonar og Bjarna Jónssonar fyrir 13 hundruð í Haukabergi og 12 hundruð í Lambadal. Anno 1654.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað í 1654.
Brotalínur.
Ein hönd auk undirskrifta. Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Safnmarkið er skrifað á bl. 1r.
Blaðsíðutöl eru rituð á efri horn bl. 1r og 2r, annars vegar 91 og hins vegar 94.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Bréfið var skrifað á Íslandi 1654.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.