„Það meðkennist eg Eyjólfur Magnússon með þessu mínu vitnisburðarbréfi …“
„… eftir lausnarans fæðing 1600 þann 29. aprilis.“
Framan á bréfinu stendur: Vitnisburður Eyjólfs Magnússonar um Keflavík í Bar. Eyjólfur ber vitni að beiðni og kröfu Jóns Magnússonar um að faðir hans hafi selt Eggerti Hannessyni part í Haga á Barðaströnd.
Eyjólfur Magnússon, léttiskrift.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Innsigli neðst á hægri spássíu bl. 1r. Brotið hefur verið inná blaðið og yfir innsiglið.
Bréfið var skrifað á Íslandi 29. apríl 1600.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.