„ Eg, Ormur Sturlason, óverðugur fyrir guði mínum, lögmaður norðan og vestan á Íslandi … “
„… mitt innsigli fyrir þetta mitt bréf skrifað í Flatey á mánudaginn næsta fyrir Kalixtusmessu þá liðið var frá Guðs burði Jesú Kristí m.d.lxx og eitt ár.“
Bréfið tengist máli Orms Sturlasonar lögmanns sem tekið var fyrir á Alþingi 1572. Sjá Alþingisbækur Íslands, I. Anno 1572 nr. 1, bls. 101-102. Reykjavík 1912-1914
Blaðið er skítugt, notkunarnúið og blettótt. Viðgert og styrkt með pappír.
Göt skerða texta.
Með hendi Orms Sturlusonar, léttiskrift.
Ártalið 1571 er skrifað með blýanti neðst til vinstri á bl. 1v.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Innsigli neðst, sem pappírsmiði hefur verið límdur yfir.
Bréfið var skrifað í Flatey á Eyjafirði, Íslandi 1571.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.