„Það gjörum vér, Ólafur prestur Sveinsson, Örnólfur Jónsson, Jón Bjarnason og Jón Einarsson, góðum mönnum kunnugt með þessu opnu bréfi, árum eftir Guðs burð, M.D.LX.VIII á Hóli í Bolun[ga]rvík, þann sétta og XX dag decembri. …“
Íslenzkt fornbréfasafn XV. nr. 140, bls. 174–175. Reykjavík 1947-1950.
Björn Bjarnason selur Árna Gíslasyni jörðina Jökulkeldu sem liggur í Mjóafirði í Vatnsfjarðarkirkjusókn. Sr. Ólafur Sveinsson, Örnólfur Jónsson, Jón Bjarnason og Jón Einarsson votta. Bréfið er dagsett 26. desember 1568.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Tvö innsigli eru fyrir bréfinu en þau hafa upphaflega verið fimm.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.