„Það meðkennist ég Ormur Stullason að ég hefi lofað Árna bónda Gíslasyni að ég skylda koma til laga við hann þar hann vildi dag og stað til setja um jarðirnar Kjarlaksstaði og Ormsstaði …“
Íslenzkt fornbréfasafn XIII. nr. 350, bls. 483–485. Kaupmannahöfn 1933–1939.
Loforð Orms Sturlusonar um Kjarlaksstaði og Ormsstaði á Skarðsströnd. Fyrri hluti bréfsins er dagsettur 19. maí 1560 en sá síðari 29. desember 1566. Á bakhlið (1v) er ritað: Vitnisburður Jóns Marteinssonar og Jóns próventumanns um Kjarlaksstaði og Ormsstaði. Utanáskriftin mun vera með hendi Árna Gíslasonar skv. Árna Magnússyni. Eftirrit eru í AM Dipl. Isl. Fasc. LXVIII, 12 og AM Apogr. Dipl. Isl. 1025.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Tvö innsigli eru fyrir bréfinu en þau hafa upphaflega verið þrjú. Allir þvengir eru varðveittir.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.