Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,12

Kvittunarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Kvittunarbréf.
Upphaf

Vér bróðir Ögmundur með guðs náð biskup í Skálholti gjörum góðum mönnum kunnigt með þessu …

Niðurlag

… fyrir þetta kvittunarbréf skrifað í Skálholti ipso die sancti iheromini prestbiteri, anno domini þúsund fimmhundruð tuttugu og fjórir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 215, bl. 242-243. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Ögmundur biskup kvittar Ragnhildi Bjarnardóttur um skuldir Björns Guðnasonar heitins við Skálholtskirkju. Hún hefur goldið skuldina með ráði Torfa Björssonar, sonar hennar, og systra hans (DI IX:242).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (100 mm x 200 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 70 mm x 175 mm
  • Línufjöldi er 12.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi en bréfið: „Ragnhilldur lætur vte j ͨ c j jordum og xiiij ͨ betur fyrir misferle Biørns Gudnasonar“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (370 mm x 290 mm x 9 mm).

Innsigli

Innsiglið er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Skálholti 30. september 1524.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 17. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn