Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XLVI,5

Vitnisburðarbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf.
Upphaf

Það gjörum vér Árni prestur Gíslason, Jón Höskuldsson, Magnús Ingimundarson, Sveinbjörn Þórðarson og Jón Jónsson leikmenn góðum mönnum …

Niðurlag

… skrifað í Flatey á Breiðafirði föstudaginn næstan eftir á, á sama ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIX. nr. 599, bl. 812-813. Reykjavík 1909-1913

Athugasemd

Vitnisburðarbréf um lýsingu Hafliða Skúlasonar, sem verið hafði með Þorleifi Björnssyni frá því hann var ungur piltur og þar til hann lést um heimildir fyrir jörðinni Hvallátur í Mjóafirði, viðskipti Þorleifs og Lopts Ormssonar með fleiru (DI IX:142).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (160 mm x 235 mm)
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 140 mm x 215 mm
  • Línufjöldi er 27.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v með annarri hendi „Vitnizburdur vm Látur j Mioafirde.“

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (520 mm x 420 mm x 9 mm).

Innsigli

Þrjú innsigli eru varðveitt og einn innsiglisþvengur að auki fylgir í sérumbúðum með leifum af skrift á.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað í Flatey á Breiðafirði 5. júní 1523.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 15. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn