„Það gjöri ég, Jón prestur Broddason, officialis Hólabiskupsdæmis, góðum mönnum kunnugt med þessu mínu bréfi að eg meðkennumst að Kolli bóndi Magnússon lukti og mér afventi Hóladómkirkju vegna svo vorðna peninga …“
„… og til sanninda hér um set ég mitt officialis innsigli fyrir kvittunar bréf, skrifað á Hólum í Hjaltadal, níunda dag desembremánaðar MCCCCVI.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 590, bl. 714. Kaupmannahöfn 1893
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 164. Bréf nr. 131.København 1963.
Falsbréf. Jón prestur Broddason kvittar Kolla bónda Magnússyni fyrir að hafa goldið hálfa Skálá með tilgreindum hlunnindum í próventu Ingibjargar Þorláksdóttur húsfreyju sinnar.(DI III:714). Upphaflega bréfið hefur verið skrapað af og falsbréfið skrifað ofan á.
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v stendur með 17. aldar hendi: „Skala bref“
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Þrjú göt eru fyrir innsiglisstrengi en ekkert innsigli er varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Hólum 9. decsmber 1406. En skjalið er falsað og var í raun skrifað nálægt 1600 (DI III:714).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.