„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Jón Ófeigsson, Ívar Hafliðason, Eyvindur Ketilsson, Ólafur Einarsson kveðju guðs og sína kunnugt gerandi að þar vorum vér í hjá, sám og heyrðum …“
„… ok til sanninda hér um settum vér vor innsigli fyrir þetta bréf, gert í Hvalfirði næsta dag eftir Jakobsmessu, anno domini M° cd° quinto.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 582, bl. 704. Kaupmannahöfn 1893
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 161. Bréf nr. 129.København 1963.
Fjórir menn votta um jarðaskipti og jarðakaup þeirra Þorgils Jónssonar og Ingunnar Brynjólfsdóttur konu hans, Benedikts Brynjólfssonar og Bjarnar Einarssonar (DI III:704).
Óþekktur skrifari.
Á bakhlið stendur með hendi frá 15. öld: „vmm kirkiu bol j jsafirdi ok fleiri jardir adrar“ og ártalið 1405 fyrir ofan.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Upphaflega hafa fjögur innsigli verið fyrir bréfinu en aðeins innsigli nr. 2 er varðveitt. Það tilheyrir Ívari Hafliðasyni.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Hvalfirði 26. júlí 1405.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.