Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. V,22

Frumbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Frumbréf.
Upphaf

Þeim góðum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra senda Eiríkr Þorleifsson …

Niðurlag

… innsigli með vorum innsiglum fyrir þetta bréf, gjört í sögðum stað, degi og ári sem fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 519, bl. 623-624. Kaupmannahöfn 1893

Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 133-134. Bréf nr. 107. København 1963.

Athugasemd

Jón Hákonarson selur séra Halldóri Loptssyni hálfa jörðina Grund í Eyjafirði með Holti fyrir tilteknar jarðir. Frumbréfið virðist vera með sömu hendi og Nr. 510 hér er framan (23. Okt. 1395) og mun það án efa vera hönd séra Halldórs Loptssonar, því enginn annar, af þeim sem nefndir eru í bréfunum, kemur við þau bæði (Íslenzkt fornbréfasafn III:623).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (109 mm x 260 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 87 mm x 245-250 mm.
  • Línufjöldi er 15.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v er „grundar Bref gamallt“ skrifað með hendi frá ca. 1600. Með hendi frá ca. 1700 er skrifað „Kuittantia vm halfa grund Jonz Hakonssonar“ og undir því „NB“ og aftur með blýanti „✻ NB NB“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Innsigli

Fimm innsigli hafa verið fyrir bréfinu, en fjögur eru dottin frá. Bakhlið eins innsiglis er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Grund, Eyjafirði 2. febrúar 1398.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. V,22
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Frumbréf.

Lýsigögn