Skráningarfærsla handrits

AM 109 a II 8vo

Fornaldarsögur og Íslendingaþáttur ; Íslandi

Innihald

1 (1r-11v (bl. 143r-153v))
Friðþjófs saga
Titill í handriti

Hér byrjar sögu af Friðþjófi enum frækna

Upphaf

Svo byrjar sögu þessa að Beli konungur

Niðurlag

og endar hér með sögu frá Friðþjófi hinum frækna.

Skrifaraklausa

25. janúar 1660 (bl. 11v).

Athugasemd

Óheilt. Á milli bl. 10 og 11 vantar blöð.

2 (11v (bl. 153v))
Jökuls þáttur Búasonar
Titill í handriti

Þáttur Jökuls Búasonar hins frækna

Upphaf

Það er af þessum Jökli að segja

Niðurlag

vissi hann aldrei hvar hann fór. Varð honum

Athugasemd

Aðeins upphaf þáttarins. Framhaldið er varðveitt í AM 116 8vo.

3 (12r-19r (bl. 154-162r))
Ketils saga hængs
Titill í handriti

Hér byrjast þáttur af Katli hæng

Upphaf

Hallbjörn hét maður og var kallaður hálftröll

Niðurlag

og endar hér þátt af Katli hæng.

4 (19v-23v (bl. 162v-166v))
Gríms saga loðinkinna
Titill í handriti

Hér byrjast þáttur af Grími loðinkinnu

Upphaf

Svo er sagt að Grímur sonur Ketils

Niðurlag

og lýkur hér þessari sögu frá Katli hæng og Grími loðinkinnu.

Skrifaraklausa

1659 (bl. 23v).

5 (23v-68r (bl. 166v-211r))
Örvar-Odds saga
Titill í handriti

Hér byrjar sögu af Örvar-Oddi hinum víðförla

Upphaf

Maður er nefndur Grímur loðinkinna

Niðurlag

lýkur hér svo sögu Örvar-Odds.

Skrifaraklausa

Mánudaginn fyrsta í þorra 1660 (bl. 68r).

Athugasemd

Á bl. 68v er krot, m.a. titillinn á eftirfarandi sögu og nafn (sjá feril).

6 (69r-114r (212r-157r))
Hrólfs saga kraka
Titill í handriti

Saga af Hrólfi konungi kraka

Upphaf

Maður hét Hálfdan en annar Fróði

Niðurlag

og endar hér sögu Hrólfs konungs kraka og kappa hans.

Skrifaraklausa

1. maí 1660 (bl. 114r).

7 (114v (bl. 257v))
Ketils saga hængs
Titill í handriti

Hér byrjar þáttinn af Katli hæng

Upphaf

Hallbjörn hét maður og var kallaður hálftröll

Niðurlag

gaf honum þá öxi harla góða. Hallbjörn

Athugasemd

Aðeins upphaf sögunnar.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
i + 114 + i blöð (160 mm x 80,3 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking 143-257.

Hlutar handritsins eru merktir: E-F (Friðþjófs saga); A-G (Hrafnistumannasögurnar); A-F (Hrólfs saga kraka).

Umbrot

Einn dálkur

Griporð

Skrifarar og skrift

Ein hönd. Óþekktur skrifari.

Band

Bundið c. 1890 (166 mm x 125 mm x 30 mm). Pappaspjöld klædd brúnum pappír. Horn og kjölur klædd fínofnum líndúk. Saumað á móttök.

Í öskju með AM 109 a II og III.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til áranna 1659 og 1660 (sjá bl. 11v, 23v, 68r, 114r).

Enn fremur hafa eftirfarandi sögur einnig verið í AM 109a 8vo: annað eintak af Hrólfs sögu kraka, Ketils sögu hængs, Gríms sögu loðinkinna og Örvar-Odds sögu. Einnig Þorsteins saga Víkingssonar, Göngu-Hrólfs saga, Sturlaugs saga starfsama, og Þorsteins þáttur bæjarmagns (sbr. AM 477 fol.).

Ferill

Á bl. 68v er nafnið Sr. Björn Skúlason með ártalinu 1684.

Á bl. 69r nm. er skrifað Ketill Björnsson.

Aðföng

Afhendingu frestað vegna rannsókna í Kaupmannahöfn. Í láni þar frá 18. apríl 1997. Skilað 1. ágúst 2006.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Otto Ehlert gerði við og batt á árunum 1880-1890.

Notaskrá

Höfundur: Slay, Desmond
Titill: , The manuscripts of Hrólfs saga kraka
Umfang: XXIV
Titill: Fornaldar sögur Norðrlanda II.
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Titill: Fornaldar sögur Norðrlanda I.
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Titill: , Hrólfs saga kraka
Ritstjóri / Útgefandi: Slay, Desmond
Umfang: 1
Höfundur: Slay, Desmond
Titill: The Date of 922 4to,
Umfang: s. 83-87
Titill: Hrólfs saga kraka og Bjarkarímur,
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: 32
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: , [Friðþjófs saga]. Sagan ock rimorna om Friðþiófr hinn frækni
Ritstjóri / Útgefandi: Ludvig Larsson
Umfang: 22
Höfundur: Jorgensen, Peter A.
Titill: Gripla, Þjóstólfs saga hamramma. The case for forgery
Umfang: 3
Lýsigögn
×

Lýsigögn